Formann eða leiðtoga? Einar Bárðarson skrifar 13. febrúar 2026 10:47 Hugleiðingar fyrir flokksþing Framsóknarflokksins Þegar Framsóknarflokkurinn gengur til formannskjörs um helgina eru tveir kostir í boði: tvær konur bjóða sig fram til embættisins og hvor um sig táknar ákveðna sýn á leiðtogahlutverkið. Að mínu mati hefur umræðan leitað í formsatriðum í stað þess að spyrja stærri spurninga um stöðu flokksins, samtalið við flokksmenn, þjóðina og verkefnin fram undan.Báðar geta þær sinnt formennsku með prýði en í mínum huga er ein þeirra er leiðtogi.Ingibjörg Isaksen hefur lagt áherslu á að formaður þurfi að vera á þingi. Það er sjónarmið sem á sér rök, enda er Alþingi vettvangur daglegra stjórnmála. En staðreyndin er sú að Framsókn starfar nú í minnihluta með fámennan þingflokk, og það breytir forsendunum. Í minnihlutastöðu verður fámennur þingflokkur enn valdaminni, það er einföld pólitísk stærðfræði. Þá vaknar sú spurning hvort leiðtogahlutverkið eigi fyrst og fremst að vera bundið við þingsalinn eða hvort stundum þurfi rödd utan hans sem getur sinnt uppbyggingu, stefnumótun og samtali við grasrótina af meiri krafti.Tímasetningin skiptir líka máli. Í vor fara fram sveitarstjórnarkosningar þar sem Framsókn hefur byggt upp sterkar stöður víða um land og þarf að vernda þær stöður. Leiðtogi sem er ekki bundinn í þinglokaumræðum fram á síðustu stundu gæti, að mínu mati, veitt frambjóðendum Framsóknar mun meiri styrk, sýnileika og stuðning á vettvangi. Fyrir mér er það hluti af stærri myndinni: leiðtogahlutverkið snýst ekki aðeins um þingið heldur líka um tengslin við landið allt. Allt komast á dagskrá við eldhúsborðið.Lilja Dögg Alfreðsdóttir er leiðtogi. Hún er hugaður og ástríðufullur stjórnmálamaður sem forðast ekki átök þegar hún telur málstaðinn þess virði. Henni virðist standa á sama hvort hún eigi í pólitískum orðaskiptum við innlenda andstæðinga á borð við Sigmund Davíð Gunnlaugsson eða Kristrúnu Frostadóttur eða það þurfi að taka harða umræðu við erlenda ráðamenn eins og Gordon Brown þegar á okkur er brotið. Að mínu mati er það leiðtogi sem er ófeiminn, fylginn sér og tilbúinn að standa fast á stefnu flokksins þegar á reynir.Þá má heldur ekki líta fram hjá þeirri menningarlegu vídd sem hefur orðið sýnilegri í stjórnmálum á síðustu árum. Áherslan á stöðu íslenskrar tungu í stafrænum heimi og gervigreind hefur orðið hluti af stærri umræðu um sjálfsmynd og framtíðarsýn. Lilja Alfreðsdóttir tók einn mesta slag íslenskrar menningar og tungu þegar hún fór risafyrirtækja á milli í Bandaríkjunum og tryggði íslenskunni lögheimili í heimum gervigreindar sem þáverandi menningarmálaráðherra. Það eru líklega mestu afrek í þágu íslenskrar tungu á þessari öld.Lilja Dögg er leiðtogi sem er tilbúin að taka afstöðu, ræða stór mál og tengja menningu, efnahag og alþjóðasamskipti í eina heild. Hún skilur þarfir landsbyggðarinnar og að forsenda velgengni okkar sem þjóðar hefur legið í sterkum landbúnaði og sjávarútvegi. Hún hefur yfirburðaþekkingu á efnahagsmálum hvort sem við lítum til stjórnmálamanna hér heima eða erlendis og það sama má segja um alþjóðastjórnmál.Í lok dags snýst þetta þó ekki aðeins um einstaklinga heldur um sjálfsmynd flokks. Hentar okkur formaður sem er fyrst og fremst hluti af daglegri þingrútínu eða einhvern sem hefur svigrúm til að móta með okkur stærri sýn og vinna að uppbyggingu til lengri tíma? Sú spurning er kjarni umræðunnar að mínu mati, og hún mun segja sitt um það hvernig Framsókn skilgreinir sig á næstu árum. Höfundur er framkvæmdastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar Bárðarson Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Mest lesið Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Lausnin sem leysir ekkert Jóhann Skagfjörð Magnússon skrifar Skoðun Vestmannaeyjabær, þar sem þögn er þegjandi samkomulag Linda Rós Sigurdardóttir skrifar Skoðun Starfsfólkið er öflugasta varnarlínan Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Þegar samkennd og tortryggni lifa hlið við hlið á netinu Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Geðheilbrigðisþjónusta óháð efnahag? Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Um skipulag bæja Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun 790.000 veikindadagar á ári Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Er skóli þíns barns á listanum ? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Kolbrún Áslaug Baldursdóttir, Þorgerður Katrín, o.fl.: Popúlismi og skautun í íslenskum stjórnmálum Hjörvar Sigurðsson skrifar