Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 11. febrúar 2026 13:31 Stebbi Jak er söngvari hljómsveitarinnar Dimmu. Vísir/Daníel Thor Tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson hefur verið ákærður fyrir líkamsárás en þingsetning var í málinu fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag. Stefán segist saklaus af þeim ásökunum sem á hann hafi verið bornar, en meint árás mun hafa átt sér stað í leigubíl í október árið 2023.
DV fjallar um dómsmálið gegn Stefáni, sem oft er kallaður Stebbi Jak, í dag en fram kemur í umfjöllun DV að hann sé sakaður um að hafa gefið brotaþola olnbogaskot í andlit með þeim afleiðingum að sá hafi hlotið þrjú brot í andliti og sár á vör. Stefán hafi neitað sök við þingfestingu málsins í dag og hafni bótakröfu. Sjálfur hefur Stefán tjáð sig um málið á samfélagsmiðlum, en í færslu sem hann birtir á Facebook í dag segir hann meintan árásarþola sjálfan hafa veist að sér en ekki öfugt. „Í dag mætti ég í dómsal til þingsetningar á ákærumáli. Aldrei í lífinu bjóst ég við að mæta á slíkan stað. Málið varðar að fyrir rúmum tveimur árum var ég staddur í leigubíl ásamt eiginkonu minni og öðru pari. Ég þekkti konuna vel en manninn sama og ekkert,” skrifar Stefán í færslunni. Maðurinn hafi síðan, án fyrirvara, ráðist á sig með orðum „og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir allra viðstaddra róaðist hann ekki. Hann endaði svo á að ráðast á mig líkamlega. Maðurinn hefur sem sagt kært mig fyrir líkamsárás og að auki hefur hann áreitt mig og fólk í kring um mig með mjög grófum hætti í yfir tvö ár,“ að því er segir í lýsingu Stefáns sjálfs. Hann segir málið hafa reynst mjög erfitt og hafi reynt á marga. Það jákvæða sé að nú fari að styttist í endalok málsins þar sem hann lýsir sig saklausan af þeim ásökunum sem á hann hafi verið bornar. Að öðru leyti muni hann ég ekki tjá sig um málið að sinni. Vísir hefur ekki séð ákæruna gegn Stefáni, en DV hefur eftir sínum heimildarmönnum að meintur brotaþoli í málinu hafi „borið verulegan skaða af atvikinu,“ líkt og því er lýst í frétt DV. Gert sé ráð fyrir að aðalmeðferð verði í málinu þann 20. mars. Stefán er einkum þekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Dimmu, en einnig fyrir eigin tónlistarferil og hefur meðal annars tekið þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins.
Dómsmál Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Sjá meira