Ljúft eftir að hafa tapað tveimur úrslitaleikjum í röð Valur Páll Eiríksson skrifar 10. febrúar 2026 11:02 Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, leikmaður KR. Vísir/Lýður KR-ingar gátu fagnað körfuboltatitli í fyrsta sinn um langa hríð um helgina. Fyrirliði liðsins segir þýðinguna mikla fyrir stuðningsfólk og stefnan sé sett hærra.
Mikið var fagnað í Vesturbæ Reykjavíkur á laugardag þegar liðið lagði Íslandsmeistara Stjörnunnar í úrslitaleik bikarsins. Um var að ræða fyrsta titil liðsins í sjö ár og bið eftir slíkum því á enda eftir langa titlahrinu þar á undan. Það hefur eðlilega mikla þýðingu fyrir Vesturbæinga og það þekkir uppaldi Vesturbæingurinn og lykilmaður KR, Þórir Guðmundur Þorbjarnarson vel. „Það var ótrúlega gaman að sjá alla hafa gaman og allir glaðir. Allir þessir KR-ingar. Við erum á vegferð með þetta lið og það er virkilega ánægjulegt að geta skilað titli núna,“ segir Þórir. Tapaði tveimur í röð fyrir þennan Þórir var hluti af KR liði sem grúttapaði úrslitaleik bikarsins fyrir Val í fyrra og það reyndist mönnum hvatning þegar á hólminn var komið aftur í ár. „Já, klárlega. En svo fór ég árið á undan líka með Stólunum í höllina svo þetta var þriðji úrslitaleikurinn í röð. Sem betur fer hafðist það að vinna. Við lærðum fullt af því að fara þarna í fyrra. Að mæta þarna með KR-fólkinu okkar uppi í stúku og finna fyrir orkunni var gríðarlega mikilvægt og gott fyrir okkur. Að ná þessu yfir línuna var virkilega gott,“ segir Þórir. Stuðningurinn úr stúkunni hlýtur að hafa gefið ykkur mikið? „Alveg klárlega. Maður elst upp við þetta, fer í gegnum þetta, fyrst er maður í stúkunni og svo á vellinum. Það er ótrúlega góð tilfinning að finna fyrir stúkunni,“ segir Þórir. Markmiðið er að halda uppbyggingunni áfram. „Að ná að vinna þessa tvo leiki sýnir að við getum keppt við efri liðin. Núna tekur deildin við og fullt af hörkuleikjum fram undan. Við þurfum að mæta af krafti í þá leiki til að koma okkur í sem besta stöðu fyrir úrslitakeppnina,“ segir Þórir. Fleira kemur fram í viðtali við Þóri sem má sjá í heild sinni að neðan. Klippa: Þórir ræðir bikartitil, pressuna og framhaldið
KR Bónus-deild karla VÍS-bikarinn Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira