Hakkar í sig þá sem vildu reka Alfreð Gíslason Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. janúar 2026 19:31 Alfreð Gíslason sést hér á hliðarlínunni í sigrinum á Portúgal þar sem hann stýrði þýska liðinu til sigurs. Getty/ Sina Schuldt Þýska handboltagoðsögnin Christian Zeitz var hneykslaður á umræðunni eftir tap þýska landsliðsins á móti Serbíu í riðlakeppni EM í handbolta.
Alfreð Gíslason þjálfari þýska landsliðsins gerði stór mistök í Serbaleiknum og tók þau líka á sig. Það þýddi að þýska liðið lenti í leik upp á líf eða dauða á móti sterku spænska liðinu sem Alfreð og strákarnir hans kláruðu með glæsibrag. Þeir byrjuðu svo frábærlega í milliriðlinum með sigri á Portúgal í dag. Fyrir leikinn við Portúgala skrifaði Christian Zeitz stuttan pistil á samfélagsmiðilinn Linkedin þar sem hann hneykslaðist á viðbrögðum hinna svokölluðu sérfræðinga eftir þennan Serbaleik. Háværar kröfur um að landsliðsþjálfarinn verði rekinn „Tapið gegn Serbíu kveikti kunnugleg viðbrögð: Um leið og lokaflautið gall, tóku „meðvindasiglararnir“ til máls. Strax heyrast háværar kröfur um að „landsliðsþjálfarinn verði rekinn!“ og allt starf Alfreðs Gíslasonar ásamt árangri síðustu ára er dregið í efa,“ skrifaði Christian Zeitz en hann lék undir stjórn Alfreðs hjá Kiel. „Það er hins vegar faglega hæpið að dæma frammistöðu heils tímabils út frá einum leik í riðlakeppni. Þeir sem skilja íþróttina vita að maður ætti að klára mótið áður en endanlegur dómur er felldur,“ skrifaði Zeitz. Gjá á milli skoðunar og þekkingar „Tjáningarfrelsi er mikils virði, en í atvinnuíþróttum er oft gjá á milli skoðunar og þekkingar. Þeir sem aldrei hafa sjálfir staðið á vellinum á EM eða HM vanmeta sálfræðilega gangverkið. Að leikur geti haft tvo gjörólíka hálfleiki er ekki merki um vanhæfni, heldur veruleiki sem sérhver íþróttamaður – frá áhugamanni til atvinnumanns – hefur upplifað á eigin skinni,“ skrifaði Zeitz. „Hlutverk samfélagsmiðla og áhrifavalda þar er sérstaklega gagnrýnivert. Margir stökkva á tískuvagninn án dýpri tengsla við handboltann, eingöngu til að fylla rásina sína,“ skrifaði Zeitz. Sviðsetja tengsl sem eru ekki til staðar „Skyndilega er tíu ára gömul mynd með landsliðsmanni dregin fram til að sviðsetja tengsl sem eru ekki til staðar í daglegu lífi. Í dag er það handbolti, á morgun önnur íþrótt – aðalatriðið er að fylgjendatölur og „like“ séu í lagi. Þessi tegund yfirborðsmennsku gerir hörðum kjarna handboltaíþróttarinnar ekki rétt,“ skrifaði Zeitz. Markus Baur, þjálfari Frisch Auf Göppingen í þýsku deildinni, tekur líka undir þetta í athugasemdum við færsluna. Draga í efa hæfni og frammistöðu þjálfara og leikmanna „Ég er alveg sammála þér. Sérstaklega á Evrópumótinu í handbolta (en líka almennt í íþróttaheiminum) sjáum við oft hvernig meintir „sérfræðingar“ einbeita sér að einstökum neikvæðum atriðum til að draga í efa hæfni og frammistöðu þjálfara og leikmanna. Þetta kann að vekja athygli og afla smella til skamms tíma, en fyrir þá sem raunverulega þekkja til er þetta oft pirrandi,“ skrifaði Markus Baur. „Sérstaklega í handbolta, sem er þekktur fyrir að vera kaflaskiptur leikur, munum við aldrei sjá leik án mistaka. Það sem skiptir máli er hvernig liðið tekst á við veikleika á uppbyggilegan hátt til að geta bætt sig markvisst í næsta leik. Að mínu mati sýndi þýska liðið þetta á áhrifamikinn hátt í leiknum gegn Spáni,“ skrifaði Baur.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Fótbolti Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Golf Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Fótbolti Real Madrid missti niður tveggja marka forskot gegn Alberti og félögum Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Fótbolti „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira