Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Samúel Karl Ólason skrifar 21. janúar 2026 09:39 Donald Trump þegar hann lagði af stað til Davos í nótt. AP/Evan Vucci Margir af þjóðarleiðtogum heims eru staddir í Davos í Sviss á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum). Mikil umræða átti sér stað þar í gær um stöðuna í heimsmálum, hótanir Bandaríkjamanna í garð Grænlands, stríðsrekstur Rússa í Úkraínu og breytta ásýnd heimsins. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sem margir í Evrópu telja ástæðu þessarar breyttu heimsmyndar sem heimsálfan stendur frammi fyrir, mun halda ræðu í Davos í dag. Forsetaflugvél hans var snúið við í morgun vegna bilunar en hann er á leiðinni í annarri flugvél. Ræða Trumps á að hefjast klukkan 13:30 í dag, að íslenskum tíma, en það gæti breyst vegna áðurnefndrar bilunar. Hún á sér stað samhliða því að Trump hefur beitt nokkur bandalagsríki Bandaríkjanna í NATO tollum vegna samstöðu þeirra með Grænlendingum, sem Trump vill þvinga til að ganga inn í Bandaríkin, og Dönum. Í ræðum í gær vöruðu leiðtogar eins og Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, og Emmanuel Macron, forseti Frakklands, við því að lögmál frumskógarins væri að taka við af alþjóðasamþykktum og samvinnu. Í vaktinni hér að neðan ætlum við að fylgjast með helstu vendingum í Davos í dag og öðrum vendingum sem snúa að Trump og Grænlandi, svo eitthvað sé nefnt. Hér fyrir neðan má finna vaktina okkar, þar sem við fylgdust með þróun mála. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni (e. refresh).
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sem margir í Evrópu telja ástæðu þessarar breyttu heimsmyndar sem heimsálfan stendur frammi fyrir, mun halda ræðu í Davos í dag. Forsetaflugvél hans var snúið við í morgun vegna bilunar en hann er á leiðinni í annarri flugvél. Ræða Trumps á að hefjast klukkan 13:30 í dag, að íslenskum tíma, en það gæti breyst vegna áðurnefndrar bilunar. Hún á sér stað samhliða því að Trump hefur beitt nokkur bandalagsríki Bandaríkjanna í NATO tollum vegna samstöðu þeirra með Grænlendingum, sem Trump vill þvinga til að ganga inn í Bandaríkin, og Dönum. Í ræðum í gær vöruðu leiðtogar eins og Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, og Emmanuel Macron, forseti Frakklands, við því að lögmál frumskógarins væri að taka við af alþjóðasamþykktum og samvinnu. Í vaktinni hér að neðan ætlum við að fylgjast með helstu vendingum í Davos í dag og öðrum vendingum sem snúa að Trump og Grænlandi, svo eitthvað sé nefnt. Hér fyrir neðan má finna vaktina okkar, þar sem við fylgdust með þróun mála. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni (e. refresh).
Bandaríkin Grænland Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Innrás Rússa í Úkraínu Danmörk NATO Evrópusambandið Sviss Donald Trump Mest lesið Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Innlent Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Erlent Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Innlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Erlent Fleiri fréttir Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Telur Trump gera mistök Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Sjá meira