„Sáru töpin sitja í okkur“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. janúar 2026 11:32 Viggó er bjartsýnn á íslenskan sigur í kvöld. vísir/vpe „Það er fínn andi í okkur. Við vissum að við ættum að vinna fyrstu tvo leikina á pappír og við gerðum það vel. Nú er bara fyrsti leikur í milliriðli gegn Ungverjum,“ segir Viggó Kristjánsson fyrir leikinn mikilvæga í kvöld.
Eins og alþjóð veit hafa Ungverjar gert strákunum lífið leitt í gegnum tíðina. Ætli Viggó sé orðinn þreyttur á að mæta þeim? Klippa: Kominn tími til að vinna Ungverjana „Kannski ekki þreyttur en það er kominn tími á að við vinnum þá. Höfum ekki gert það síðan á Covid-mótinu. Nú höfum við tapað tvisvar í röð fyrir þeim á grátlegan hátt og það er kominn tími á að við vinnum þá,“ segir Viggó ákveðinn en er einhver aukahvatning í því að þurfa að svara fyrir sig gegn þessu ungverska liði? „Ég held að sé alveg hægt að segja. Öll sáru töpin sitja í okkur. Það hefur munað litlu svo við gætum tekið næsta skref. Það er ekkert annað að gera en að mæta tilbúnir til leiks og vinna.“ Tapið fyrir Ungverjum í Kristianstad var sérstaklega sárt enda kastaði íslenska liðið unnum leik frá sér þar. „Það eru þrjú ár síðan og bæði lið svipuð núna. Það verður gaman að mæta þeim. Við þurfum að passa margt hjá þeim enda eru þeir með gott lið. Þetta mun falla á einhverjum smáatriðum á endanum og vonandi fellur það okkar megin. Við erum nánast á heimavelli enda stuðningurinn ótrúlegur. Við mætum með kassann út og svo þarf leikgleðin og baráttan að vera upp á tíu.“
EM karla í handbolta 2026 Landslið karla í handbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sjá meira