Mjög óalgengt að þingmenn segi af sér Bjarki Sigurðsson skrifar 16. janúar 2026 12:48 Guðbrandur Einarsson hefur sagt af sér sem þingmaður. Vísir/Vilhelm Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar og formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, hefur sagt af sér þingmennsku vegna tilraunar til að kaupa vændi árið 2012. Prófessor í stjórnmálafræði segir það gríðarlega sjaldgæft að þingmenn segi af sér.
Árið 2012 var Guðbrandur kallaður í yfirheyrslu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna rökstudds gruns um vændiskaup. Í samtali við fréttastofu á miðvikudag sagðist hann hafa í yfirheyrslu neitað sök. Einbeitir sér að fjölskyldumálum Eftir að honum var tilkynnt að frétt myndi birtast um málið í dag, föstudag, sendi hann yfirlýsingu þar sem hann viðurkenndi að hafa haft samband við konu með vændiskaup í huga en að honum hafi snúist hugur þegar á staðinn var komið. Hann hafi að lokinni yfirheyrslu yfirgefið lögreglustöðina og ekki heyrt aftur frá lögreglu. Í yfirlýsingunni segir Guðbrandur þetta hafa verið stór mistök sem hann harmi mjög, sérstaklega gagnvart fjölskyldu sinni og samstarfsfólki í Viðreisn og á Alþingi. Hann geri sér fulla grein fyrir alvarleika málsins og ætli að einbeita sér að fjölskyldu sinni næstu daga. Hann muni því ekki tjá sig meira um málið. Örfáar afsagnir Þá segir orðrétt: „Um mikilvæg störf ríkisstjórnarinnar verður að ríkja algjört traust og friður og á það líka við um þingmenn hennar. Ég hef því ákveðið að segja af mér þingmennsku samstundis og hef látið forystu flokksins vita af því.“ Afsagnir þingmanna Árni Johnsen - 2001 Sagði af sér vegna fjárhagsmála. Bjarni Harðarson - 2008 Sagði af sér vegna óviðeigandi upplýsingasendinga. Guðni Ágústsson - 2008 Sagði af sér vegna innri deilna í Framsókn. Steinunn Valdís Óskarsdóttir - 2010 Sagði af sér vegna styrkjamáls í kjölfar hrunsins. Þórður Snær Júlíusson - 2024 Sagði af sér vegna óviðeigandi bloggskrifa. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir það afar sjaldgæft að þingmenn segi af sér vegna hneykslismála. Nýlegasta dæmið er þegar Þórður Snær Júlíusson sagði af sér um leið og hann settist inn á þing. „Það eru Árni Johnsen, vegna fjárhagsmála árið 2001, Bjarni Harðarson árið 2008 vegna upplýsingasendinga sem voru taldar óviðeigandi. Síðan stígur Steinunn Valdís Óskarsdóttir til hliðar vegna styrkjamáls sem kom upp í kjölfar hrunsins. Svo sagði Guðni Ágústsson af sér vegna innri deilna í Framsóknarflokknum,“ segir Eiríkur. Ráðherrar segja oftar af sér Þá séu dæmi um að þingmenn stigi til hliðar eða hætti við framboð vegna ásakana um kynferðislegt misferli. Algengara sé að ráðherrar segi af sér. „Til dæmis í máli Ásthildar Lóu, sem er líka af kynferðistoga. Hún segir af sér sem ráðherra en situr áfram sem þingmaður. Það er fjöldinn allur til af slíkum málum,“ segir Eiríkur. Eiríkur Bergmann er prófessor í stjórnmálafræði.Vísir/Vilhelm
Mál Guðbrands Einarssonar Viðreisn Alþingi Vændi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira