Ekki innistæða fyrir því að vera kokhraustir Valur Páll Eiríksson skrifar 16. janúar 2026 08:30 Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands. Vísir/Ívar Fannar „Það er kominn fiðringur og spenningur,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, fyrir fyrsta leik liðsins á EM sem fram fer í dag. „
Í heildina er ég sáttur, bæði við æfingar og þessa leiki sem við spiluðum í Frakklandi. Svo er sjálft mótið önnur ella, hún byrjar á morgun. Það er alltaf einhver óvissa og spenna fyrir því og ég tala ekki um fyrsta leik. Við höfum náð góðum æfingum og leikjum svo ég held að við séum klárir,“ segir Snorri um undirbúninginn en Ísland spilaði við Slóveníu og Evrópumeistara Frakka í París fyrir mót. Leikurinn við Frakka tapaðist naumlega þar sem Ísland var með yfirhöndina lengi vel. Þrátt fyrir úrslitin var frammistaðan fantagóð stærstan part. „Það var meira jákvætt heldur en neikvætt. Auðvitað ertu smá fúll þegar þú tapar, sérstaklega þar við köstuðum honum frá okkur. En það er betra kasta þessum leik frá okkur en því sem er að koma. Við fengum fullt af svörum, þegar þú spilar á móti svona þjóð færðu að vita það sem þú þarft. Nú tekur alvaran við,“ segir Snorri Steinn. Loftbrú hefur verið frá Íslandi til Kristianstad þar sem riðlakeppnin fer fram og má búast við fjölmenni Íslendinga í stúkunni. Mikilvægt er fyrir menn að nýta þá orku sem fylgir stuðningsfólkinu til góðs. „Alveg 100 prósent. Þeir sem spiluðu hérna 2023 muna þetta alveg. Þetta er eitthvað sem er ekki sjálfsagður hlutur, við erum hrikalega þakklátir fyrir. Þetta verður klárlega geggjuð stemning en hún er líka bundin því að við spilum vel og gerum hlutina almennilega. Því er þetta í okkar höndum að spila vel og búa stemninguna til,“ segir Snorri Steinn. Hafa ekki efni á að vera of kokhraustir Ísland er í lakari helmingi mótsins og mun sleppa við að mæta Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi og Spáni í milliriðli. Margir sérfræðingar úti í heimi spá Íslandi sæti í undanúrslitum. Hefur sú umræða áhrif og fylgir henni pressa? „Ég bara veit það ekki. Það verður að koma í ljós þegar mótið fer af stað. Mér finnst liðið vera einbeitt og við hafa haldið okkur á jörðinni. Við gerum okkur grein fyrir því að þetta er erfitt og það er margt sem þarf að gerast. Þar fyrir utan hefur þetta ekki gerst það oft hjá okkur að við getum verið eitthvað kokhraustir. Fyrsta verkefnið er Ítalía og við eigum fullt í fangi með það,“ segir Snorri Steinn. Skrýtið lið Ítalía er verkefni dagsins og vegferðin hefst þar. Ítalska liðið spilar heldur óhefðbundinn handbolta, oft án línumanns, með tvo leikstjórnendur í staðinn og framliggjandi 3-3 vörn. Þarf að breyta nálgun Íslands fyrir leikinn? „Nálgunin er kannski ekkert öðruvísi. Þetta er kannski eitthvað sem er ekki alveg hefðbundið, þeir spila mikið án línumanns og öðruvísi vörn. En nálgunin er samt bara að við gerum okkar, gerum það vel og þá erum við í fínum málum held ég,“ „Auðvitað eru einhverjar áherslur sem fylgja því að vinna Ítalina. Hvort við séum eitthvað að breyta út af vananum – við erum bara að reyna að komast í það sem við erum góðir í, að sækja á okkar hluti frekar en að aðlaga okkur alltof mikið að þeim,“ segir Snorri Steinn. Klippa: Snorri Steinn fer yfir sviðið fyrir fyrsta leik Viðtalið má sjá í spilaranum að ofan. Ísland mætir Ítalíu klukkan 17:00 í dag. Teymi Sýnar fylgir íslenska liðinu vel eftir fram að leik og eftir hann. Leiknum verður lýst í beinni textalýsingu á Vísi.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Fótbolti Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Golf Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Real Madrid missti niður tveggja marka forskot gegn Alberti og félögum Fótbolti Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Fótbolti „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira