Getur Samfylkingin leitt breytingar í Reykjavík? Jóhannes Óli Sveinsson skrifar 15. janúar 2026 07:33 Borgarbúar fylgjast nú með prófkjöri Samfylkingar í Reykjavík. Málstaður okkar jafnaðarfólks nýtur mikils stuðnings meðal landsmanna og jafnaðafólki hefur verið treyst fyrir stjórn borgarinnar um árabil. Eftir 16 ára samfellda forystu Samfylkingar munu borgarstjórnarkosningar í vor snúast um það hvort tekin verður harkaleg U-beygja til hægri eða hvort Samfylkingin getur leitt breytingar í Reykjavík? Ég lít svo á það sé skylda okkar jafnaðarfólks að leiða jákvæðar breytingar í þágu borgarbúa. Ég vil ekki sjá einhverja fjarhægrivitleysu í borgarstjórn. Og ég vona að við sem tökum þátt í prófkjöri flokksins í borginni stillum upp sigurstranglegum framboðslista sem býður borgarbúum upp á betri valkost en harðlínuhægrið þykist bjóða. Reykjavík er frábær borg. Þorri borgarbúa er með sterka jafnaðartaug og margir líta til Samfylkingar. En við jafnaðarfólk megum aldrei taka trausti borgarbúa sem gefnu. Við megum ekki skorast undan því að leiða breytingar og festast í þægilegum valdastólum. Þvert á móti. Það er Samfylkingin sem á að leiða breytingar í Reykjavík. Á grunni jafnaðarmennsku – í þágu borgarbúa. Til þess þarf kjark til að breyta. Kjark til að hrista upp í hlutunum og kalla nýtt fólk til verka og forystu með fjölbreytta reynslu af því að lifa og starfa í borginni. Við eigum að vera óhrædd, líta í eigin barm og hlusta vandlega á fólkið sem við störfum fyrir. Eða til hvers er jafnaðarstefnan? Til hvers er barist og hvert er hlutverk Samfylkingar? Við eigum að berjast fyrir kjörum venjulegs fólks í daglegu lífi. Íbúðum á viðráðanlegu verði. Sterku velferðarkerfi. Þjónustu við eldra fólk og öryrkja. Leikskólum fyrir öll börn. Stuðningi í skólunum og öflugu íþrótta- og frístundastarfi. Þetta snýst ekki um einstaklinga eða tiltekna fulltrúa flokksins. Þannig hefur það aldrei verið. Þetta snýst um hugsjónir okkar og fólkið í borginni – að fulltrúar okkar njóti trausts svo að jafnaðarstefnan fái framgang í Reykjavík. Getur Samfylkingin leitt breytingar í Reykjavík? Svar mitt er hiklaust: Já. Samfylkingin getur og á að leiða breytingar í borginni. En þá þurfum við að sýna borgarbúum að við höfum kjark til að breyta og að við séum sá flokkur sem er best til þess fallinn. Svarið er ekki alltaf að gera meira af því sama og vona það besta. Stundum verður flokkur sósíaldemókrata að sýna frumkvæði til breytinga. Tíminn er núna. Ég er íbúi í Reykjavík. Aðfluttur frá Húsavík og bý í leiguhúsnæði með nokkrum félögum sem stunda líka nám í höfuðborginni okkar. Ég er jafnaðarmaður af lífi og sál og forseti Ungs jafnaðarfólks. Ég styð Pétur H. Marteinsson í 1. sætið í prófkjöri Samfylkingar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor vegna þess að ég treysti honum til að leiða Samfylkinguna og Reykjavík til sigurs. Prófkjörið fer fram 24. janúar og er opið öllum skráðum flokksfélögum. Þú getur tekið þátt með því að skrá þig í flokkinn fyrir miðnætti 22. janúar. Fram til sigurs! Höfundur er forseti Ungs jafnaðarfólks. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar