„Ótrúlega dýrmætur sigur fyrir okkur“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 3. janúar 2026 21:14 Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar. Vísir/Hulda Margrét Lárus Jónsson, þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn, var að vonum ánægður með sína menn eftir öruggan 30 stiga sigur gegn ÍA í 12. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld, 105-75. „
Það er gott að byrja árið á sigri, sérstaklega af því að við vorum náttúrulega með jafn mörg stig og ÍA fyrir þennan leik. Þannig þetta var ótrúlega dýrmætur sigur fyrir okkur,“ sagði Lárus í leikslok. Hann segist hafa búist við meiri mótstöðu frá Skagamönnum í kvöld, en að fjarvera lykilmanna þeirra hafi vissulega útskýrt ýmislegt. „Þá vantaði náttúrulega besta manninn sinn undir körfuna þannig við höfðum nokkra yfirburði þar,“ sagði Lárus og átti þá við Gojko Zudzum sem hefur verið frá vegna meiðsla frá því snemma í desember. „Það skóp svolítið þennan sigur hjá okkur. Svo voru þeir Kanalausir þannig það vantaði mikið í liðið hjá Skagamönnum.“ Eins og Lárus segir höfðu Þórsarar mikla yfirburði undir körfunni í kvöld og það sást kannski best á því að Djordje Dzoletovic skoraði 25 stig og tók 10 fráköst, bara í fyrri hálfleik. Lárus ákvað hins vegar að gefa honum góða hvíld í seinni hálfleik. „Mér fannst menn vera að sýna fína baráttu og ágætis frammistöðu. Allir sem voru að koma inn á voru að leggja eitthvað í púkkið. Leikurinn byrjaði þannig að við vorum aðeins að fara fram úr okkur og við vorum aðeins æstir í að fá að vinna þennan leik.“ Hann hrósaði einnig ungu strákunum í liðinu fyrir mikið og gott orkustig. „Mér fannst bæði Skarphéðinn (Árni Þorbergsson) og Ísak (Júlíus Perdue) og bara ungu strákarnir búnir að vera að gera þetta svolítið í vetur. Það skilaði sér vel í kvöld og Skarphéðinn var sérstaklega góður fyrir okkur núna.“ Að lokum segist hann vonast til að geta tekið orkuna úr þessum leik með sér í þann næsta, en viðurkennir þó að sá leikur verði að öllum líkindum mun erfiðari. „Næsti leikur er náttúrulega úti á móti Álftanesi. Það verður stórleikur,“ sagði Lárus að lokum.
Bónus-deild karla Þór Þorlákshöfn ÍA Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Sjá meira