Tuttugu þúsund fiskar drápust á Tálknafirði Atli Ísleifsson skrifar 17. desember 2025 07:21 Frá Tálknafirði. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Um tuttugu þúsund fiskar drápust í fiskeldi í Tálknafirði á föstudag. Lögreglu á Vestfjörðum barst tilkynning þessa efnis fyrir helgi.
Lögregla segir frá þessu í tilkynningu á Facebook í morgun þar sem segir frá verkefnum liðinnar viku. Þar kemur fram að fiskarnir hafi drepist vegna rafmagnsleysis. Í færslunni segir enn fremur að í liðinni viku hafi tveir ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur í þremur málum. „Einn þeirra ók á 139 km hraða á klst. í Steingrímsfirði en í hinum tilvikunum, sem bæði voru í Bolungarvíkurgöngum, með nokkurra daga millibili, var um sama ökumanninn að ræða. Á þriðjudag var tilkynnt um brotnar rúður í bifreiðum á bifreiðastæðinu við flugstöðina á Ísafirði. Svo virðist sem möl hafi fokið á bifreiðarnar og brotið rúðurnar. Tvö umferðaóhöpp urðu í umdæminu í vikunni. Á Vestfjarðavegi rákust tvær bifreiðar saman. Ekki urðu slys á fólki en bifreiðarnar voru óökufærar á eftir. Í hinu tilvikinu valt vöruflutningabifreið með eftirvagn á hliðina á Barðarstrandarvegi við Patreksfjörð Björgunarsveit affermingu vagnsins svo unnt væri að koma honum á veginn á ný en bifreiðin var óökufær eftir óhappið. Á föstudag fékk lögreglan á Patreksfirði tilkynningu um að 20 þúsund fiskar hafi drepist í fiskeldi í Tálknafirði. Óhappið varð vegna rafmagnsleysis. Aðfaranótt sunnudags var nokkrum unglingum, sem voru á götum úti, ekið heim en útivistartími þeirra er til 22. Útivistartími barna og ungmenna heldur fullu gildi þrátt fyrir að stutt sé í jólaleyfi í grunnskólum,“ segir í færslunni.
Vesturbyggð Lögreglumál Fiskeldi Mest lesið Halldór Blöndal er látinn Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Innlent Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Erlent Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum Innlent Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Innlent Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Erlent Segja frekari úrbóta þörf og vísa meðal annars til PPP Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald vegna andláts í Kópavogi framlengt Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Tuttugu þúsund fiskar drápust á Tálknafirði Segja frekari úrbóta þörf og vísa meðal annars til PPP Kröfu um að gera Margréti arflausa vísað frá Halldór Blöndal er látinn Kveiktu á 200 kertum fyrir drengina sem hafa látist í baráttu við fíkn „Þarna var bara verið að tikka í box“ Gaf lungnadeildinni sex ferðasúrefnistæki til að þakka fyrir sig Kraftaverk að Gunnari hafi verið bjargað þegar hann lenti í sjónum „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ „Þessir þrír flokkar til þess að gera tómar skeljar“ Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Umdeildur athafnamaður og vendingar á vinstri væng Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Lesstofu Borgarskjalasafnsins lokað Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir „Við vitum að áföllin munu koma“ Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Sjá meira