„Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Smári Jökull Jónsson skrifar 6. október 2026 14:26 Þorgerður Katrín ræðir við blaðamenn að loknum fundunum í morgun. Vísir/Anton Brink Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagðist hafa fengið skýr svör á fundi sínum í morgun með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varðandi kortið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti sem sýndi Ísland sveipað bandaríska fánanum. Hún sagði metnað Rubio liggja í að ýta undir viðveru NATO á norðurslóðum.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók á móti Marco Rubio í Höfða í morgun og saman héldu þau síðan til fundar í Safnahúsinu við Hverfisgötu sem Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sat sömuleiðis. Á blaðamannafundi eftir fund ráðherranna svöruðu þau Þorgerður og Rubio spurningum bæði íslenskra og bandarískra blaðamanna áður en Þorgerður ræddi við íslenska fjölmiðla. Þar var Þorgerður meðal annars spurð að því hvort breytingar á viðveru Bandaríkjanna hér á landi hefðu verið ræddar á fundinum en bandarísk yfirvöld hafa undanfarnar vikur og mánuði verið að draga saman seglin hvað varðar herafla sinn í Evrópu. „Við skulum hafa það í huga að við erum með viðvarandi, má segja, herafla frá Bandaríkjunum í tengslum við P8-vélarnar og kafbátaleit sem skiptir okkur miklu máli. Þær skipta hér á sex mánaða fresti og við erum með loftrýmisgæsluna sem kemur í fjögurra til sex og allt upp í átta vikna tímabil á hverju ári,“ sagði Þorgerður „Þessi heimsókn undirstrikar það og ég fagna því sérstaklega að Marco Rubio hefur lagt mikla áherslu á öryggi, varnir og eftirlit á norðurslóðum og á Norður-Atlantshafinu. Það skiptir okkur mjög miklu máli og það var alveg augljóst að hans áhugi, ekki bara áhugi heldur hans metnaður, liggur í því að efla samskipti bæði milli Íslands og Bandaríkjanna og líka ýta undir viðveru NATO hér á þessu svæði.“ „Þetta var ekki rætt sérstaklega“ Þorgerður sagði að varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna frá 1951 hefði verið ræddur á fundinum og mikilvægi hans undirstrikað. Þá hefðu viðskiptamál einnig borið á góma og Þorgerður sagði samtal þegar hafið varðandi frekari möguleika og tækifæri í viðskiptum milli ríkjanna. Hins vegar hafi ekkert verið rætt um mögulegan fríverslunarsamning á milli Íslands og Bandaríkjanna og á blaðamannafundinum sló Rubio slíkan samning nánast út af borðinu. Á blaðamannafundinum í Safnahúsinu.Vísir/Anton Brink „Það er eitthvað sem þeir eru ekki að leggja áherslu á. Við skiljum að það eru gagnkvæmir samningar og við áttum okkur á að tækifæri okkar Íslendinga eru til að mynda á sviði jarðvarma, okkar þekking í lyfjaiðnaðinum og það eru fleiri svið sem við sjáum tækifæri í og nálgumst sem vinir og bandamenn.“ Ræða Þorgerðar Katrínar á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna á dögunum vakti töluverða athygli þegar hún beindi spjótum sínum að Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísraels. Alþjóðastjórnmálafræðingur sagði ræðuna í takti við íslenska utanríkisstefnu þó að tónninn sem Þorgerður Katrín sló hafi verið harðari en áður. Aðspurð sagði Þorgerður Katrín að ræða hennar hefði ekki verið rædd á fundi ráðherranna í morgun. „Það er alveg ljóst að ég hef lagt áherslu á það að Ísland er með sína utanríkisstefnu sem undirstrikar virðingu fyrir alþjóðalögum og það að passa þurfi upp á mannréttindi og jafnrétti. Það er ekkert sem kemur þarna á óvart og þetta var ekki rætt sérstaklega,“ sagði Þorgerður. „En við ræddum líka Rússland og það hvernig Pútín getur ekki sest niður og samið um réttlátan og langvarandi frið fyrir Úkraínu og um leið Evrópu. Það er áhyggjuefni hvert sú þróun er að fara með okkur.“ Segist hafa fengið skýr svör um kortið sem Rubio vildi ekki ræða Í byrjun mánaðarins birti Donald Trump mynd á samfélagsmiðli sínum Truth Social sem sýndi Ísland sveipað bandaríska fánanum á einhvers konar Ameríkukorti forsetans. Bandarískir fjölmiðlar spurðu Rubio út í kortið á blaðamannafundinum í morgun sem svaraði að hann vildi ekki ræða samfélagsmiðlafærslur. Þegar málið kom upp kallaði Þorgerður Katrín til fundar með sendiherra Bandaríkjanna hér á landi, Billy Long. Á fundinum sagði Þorgerður að málið væri leyst og talaði um að horfa fram á við. Þorgerður Katrín og Rubio á Keflavíkurflugvelli áður en Rubio steig upp í flugvél utanríkisráðuneytisins áleiðis til Aþenu í Grikklandi.Vísir/Anton Brink „Ég náttúrulega kallaði Billy til mín og við áttum mjög opinská samskipti. Það er gaman að tala við hann og ég hlakka til frekara samstarfs við hann. Við Kristrún ræddum líka við Landau [aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna] á sameiginlegum fundi okkar úti þar sem þetta mál var tekið upp og línurnar eru alveg skýrar.“ „Síðan höldum við bara áfram en þetta er náttúrulega alveg skýrt af okkar hálfu að við viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands, hvar sem það er. Við fengum skýr svör og síðan bara höldum við áfram okkar samvinnu fram á við.“ Ræddu stöðuna í Grindavík Fyrr á árinu var greint frá ákvörðun Bandaríkjamanna um að hækka tolla á íslenskar vörur ytra. Þorgerður segir að þeir hafi ekki sérstaklega verið ræddir. „Ég er að fara að ræða við viðskiptafulltrúann í næstu viku og þar heldur þetta samstarf áfram. Ég er mjög bjartsýn eftir þessa fundi og það er ekki sjálfgefið, eins og Marco kom inn á, að fókusinn sé á friðsælu löndin, bandamennina sem aldrei klikka. Heldur er fókusinn þar sem vandamálin og viðfangsefnin eru og þess vegna er þetta dýrmætur tími fyrir íslensk stjórnvöld að eiga fund með utanríkisráðherra Bandaríkjanna.“ Þorgerður Katrín og Marco Rubio á tröppum Höfða.Vísir/Anton Brink Að sögn Þorgerðar Katrínar var komið víða við í samtali ráðherranna og segir hún að efnahags- og viðskiptamálin hafi verið fyrirferðamikil. „Forsætisráðherra gerði það mjög „elegant“ að sýna fram á áfallaþol Íslands, meðal annars í tengslum við jarðhræringar og náttúruöflin, og veitti innsýn í það af hverju við erum með þetta viðnámsþol sem við erum með. Við ræddum um Grindavík meðal annars. Þetta voru mjög góðir fundir og gera ekkert annað en að styrkja áframhaldandi samband okkar Íslendinga við Bandaríkin,“ sagði Þorgerður Katrín að lokum.
Heimsókn Marco Rubio til Íslands Bandaríkin Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Donald Trump Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Fleiri fréttir Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Sjá meira