Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Agnar Már Másson skrifar 6. október 2026 19:58 Billy Long, Marco Rubio og Þorgerður Katrín á Keflavíkurflugvelli fyrr í dag. Vísir/Anton Bandaríkjamenn drógu úr aðkomu sinni að varnaræfingu á Íslandi vegna þess að herinn var önnum kafinn annars staðar í heiminum, að sögn Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna. „Ég held að þetta sé ekki varanleg ákvörðun,“ sagði hann á blaðamannafundi í Reykjavík í dag.
Í september var greint frá því að ekkert skip frá Bandaríkjunum hefði tekið þátt í kafbátaleitaræfingu NATO við Íslandsstrendur sem var hluti af æfingunni Norður-Víkingi. Martin O'Donnell, háttsettur talsmaður Atlantshafsbandalagsins (NATO), sagði við Vísi að Bandaríkjamenn hefðu þó enn tekið þátt í æfingunni, bara með öðrum hætti. Bandaríkin hafa yfirleitt leitt æfinguna síðustu ár en að þessu sinni voru það herlið Evrópulanda sem voru mest áberandi á æfingunni. Blaðamaður New York Times spurði Marco Rubio, utanríkisráðherra Íslands, út í þessa umfjöllun á blaðamannafundi sem Rubio og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra Íslands, héldu í Safnahúsinu í Reykjavík í dag. „Það eru augljóslega hlutir að gerast í heiminum, það er engum hulin ráðgáta,“ svaraði Rubio og nefndi að Bandaríkjaher þyrfti að ráðstafa herafla sínum eftir aðstæðum og nú stæðu Bandaríkin í stríði við Íran í Mið-Austurlöndum, auk þess sem hluti heraflans þyrfti að manna stöðvar á Indlandshafi og Kyrrahafi. Blaðamannafundurinn í Safnahúsinu var hluti af opinberri heimsókn Rubio til Íslands en Bandaríkjamaðurinn er nú kominn til Grikklands og heldur síðan til Portúgal.Vísir/Anton Brink „Þannig að ég held að þetta sé ekki varanleg ákvörðun. Ég held bara að hún hafi ráðist af tímasetningunni og að hún hafi skarast við yfirstandandi aðgerðir víða um heim,“ sagði hann. „Við vorum samt með fólk á staðnum. Við erum enn staðráðin í því. Og eins og ég sagði þá er ég í heimsókn hér í dag vegna þess að þessi staður skiptir máli bæði efnahagslega og frá varnarsjónarmiði.“ Þorgerður Katrín sagðist ekki hafa neinu við svör Rubio að bæta. „Marco útskýrði það mjög vel á fundi okkar hvers vegna þeir þyrftu herliðið annars staðar. Og ég vil undirstrika mjög sterkt samstarf okkar á sviði varnar- og öryggismála. Og það er engin breyting á því sem skiptir máli,“ sagði Þorgerður Katrín. Bandaríkin hafa að undanförnu sett pressu á NATO-ríki um að leggja meira fé til varnarmála og í síðasta mánuði sendi Bandaríkjastjórn spurningalista á Ísland sem og önnur aðildarríki Atlantshafsbandalagsins þar sem meðal annars er spurt hvort viðkomandi ríkisstjórnir hafi stutt utanríkisstefnu Bandaríkjanna og þá með opinberum hætti og kaupi hergögn af bandarískum vopnaframleiðendum.
NATO Bandaríkin Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Sjá meira