„Verðum að mæta tilbúnir“ Siggeir Ævarsson skrifar 30. nóvember 2025 09:02 Elvar Már er enn með báða fætur á jörðinni þrátt fyrir góðan útisigur á Ítölum. Vísir/Hulda Margrét Elvar Már Friðriksson átti frábæran leik þegar Ísland lagði Ítalíu í undankeppni EM á fimmtudag á útivelli. Nú bíður næsta verkefni sem er leikur gegn Bretlandi í Laugardalshöll í dag. Aron Guðmundsson ræddi við Elvar um þessa tvo leiki í gær.
Ísland hefur nú unnið Ítalíu á útivelli í nóvember tvö ár í röð en Elvar vildi ekki meina að það væri orðið að hefð, sigrarnir væru alls ekki sjálfgefnir. „Ég væri til í að gera þetta að hefð en við tökum þessu ekki sem sjálfsögðum hlut. Við þurfum að vinna mikið fyrir þessum sigrum.“ Klippa: Elvar Már um leikinn gegn Bretum í kvöld Framundan er svo leikur gegn Bretum í kvöld og Elvar er temmilega bjartsýnn. „Við vorum á vídjó-fundi áðan að skoða aðeins leikmannahópinn þeirra. Miklir íþróttamenn og mjög áræðnir leikmenn, bæði varnar- og sóknarlega. Kannski með aðeins meiri lengd og hæð, og íþróttamennsku, heldur en við þannig að við verðum að mæta tilbúnir í það verkefni og reyna að vernda heimavöllinn.“ Elvar er þó enn með báða fætur á jörðinni og er hvorki búinn að bóka sigur í dag né í næstu leikjum. „Það eru fjórir leikir í viðbót og við þurfum að fara í gegnum þá líka.“ Viðtalið við Elvar má sjá í heild í spilaranum hér að ofan.
HM 2027 í körfubolta Landslið karla í körfubolta Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Fótbolti Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu Fótbolti FH hélt Selfossi á botninum Handbolti Fleiri fréttir „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Sjá meira