Stjarnan versta skotliðið: „Komið inn í hausinn á einhverjum“ Sindri Sverrisson skrifar 24. nóvember 2025 22:45 Stjörnumenn eru neðstir á lista yfir þriggja stiga skotnýtingu í Bónus-deildinni. vísir/Guðmundur Íslandsmeistarar Stjörnunnar eru með verstu, eða eiginlega langverstu, þriggja stiga skotnýtinguna í Bónus-deild karla í körfubolta. Málið var til umræðu í Körfuboltakvöldi á föstudaginn.
Stjarnan hefur hingað til hitt úr 24,4% af þriggja stiga skotum sínum, eða innan við einu af hverjum fjórum. Næsta lið er botnlið Ármanns með 28,8% en önnur hafa hitt úr að minnsta kosti 31% þriggja stiga skota sinna. Stefán Árni Pálsson spurði sérfræðinga sína hvernig staðið gæti á þessu og hér að neðan má sjá brot úr Körfuboltakvöldi, á Sýn Sport Ísland. Klippa: Meistararnir með verstu nýtinguna „Þetta er bara mjög góð spurning. Ég held að partur af þessu sé eitthvað andlegt,“ sagði Teitur Örlygsson á meðan að skoðuð voru sláandi dæmi um þriggja stiga skot úr tapi Stjörnunnar gegn Þór í Þorlákshöfn. „Þetta er nokkuð mikið af tiltölulega opnum skotum. Auðvitað eru hvorki Seth [LeDay] né Bjarni [Guðmann Jónsson] einhverjir Steph Curry en þeir eiga að geta sett þessi skot niður með ágætri prósentu,“ sagði Hlynur Bæringsson. „Ég á í basli með að segja hvað veldur. Þetta getur verið eitthvað tímabundið, einhverjar tilviljanir, en ég held að þetta sé eitthvað komið inn í hausinn á einhverjum,“ sagði Hlynur og þeir Teitur veltu fyrir sér hvort að leikmenn Stjörnunnar væru farnir að ofhugsa hlutina einhvern veginn. Líklega væri það fínt fyrir Stjörnuna að nú væri komið landsleikjahlé. Umræðuna má sjá í heild hér að ofan.
Bónus-deild karla Stjarnan Körfuboltakvöld Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti Sjá meira