Jóhann tekur við Þrótti en Blikar leita áfram Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. október 2025 15:03 Jóhann Kristinn Gunnarsson verður nýr þjálfari Þróttar. vísir/Anton Jóhann Kristinn Gunnarsson verður næsti þjálfari kvennaliðs Þróttar í fótbolta, eftir að hafa stýrt liði Þórs/KA síðustu ár.
Samkvæmt upplýsingum Vísis stendur til að tilkynna þetta á morgun, áður en Þróttur mætir svo Val á AVIS-vellinum á laugardaginn í lokaumferð Bestu deildarinnar. Fleiri félög munu hafa haft áhuga á Jóhanni, þar á meðal Íslandsmeistarar Breiðabliks, en nú er ljóst að hann fer í Laugardalinn. Leit Blika að arftaka Nik Chamberlain, sem tekur við Kristianstad í Svíþjóð eftir Evrópuleiki Blika í nóvember, heldur hins vegar áfram. Jóhann tekur við Þrótti af Ólafi Kristjánssyni sem ráðinn hefur verið til KSÍ, meðal annars sem aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins. Undir stjórn Ólafs endar Þróttur í 3. sæti Bestu deildarinnar í ár, eftir að hafa verið fyrri hluta tímabils í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn og svo naumlega tapað baráttunni við FH um 2. sæti, hitt Evrópusætið sem í boði er í deildinni. Reyndar getur Þróttur fræðilega séð enn náð 2. sætinu en til þess þarf 18 marka sveiflu í lokaumferðinni. Jóhann hefur stýrt Þór/KA undanfarin þrjú ár en liðið endaði í 7. sæti í ár, eftir að hafa endað í 4. sæti í fyrra og 5. sæti árið 2023. Jóhann hafði áður stýrt Þór/KA í fimm tímabil, þegar hann tók við liðinu haustið 2011, og hann stýrði því til fyrsta Íslandsmeistaratitils félagsins sumarið 2012. Þessi fimm ár endaði Þór/KA aldrei neðar en í 4. sæti. Á milli áranna með Þór/KA þjálfaði Jóhann Kristinn karlalið Völsungs heima á Húsavík. Ekki liggur fyrir hver verður arftaki Jóhanns á Akureyri.
Besta deild kvenna Þróttur Reykjavík Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira