Vill heldur sjá langtímasamninga um framlög fyrir „samtök úti í bæ” Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 14. október 2025 16:20 Vísir/samsett Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir það vera undir fjárlaganefnd komið að ákvarða hvort framlögum til Ljóssins verði breytt í fyrirliggjandi fjárlögum og beinir því til heilbrigðisráðherra að svara hvernig samningar standa við félagið. Hennar persónulega skoðun á því „hvort ákveðin samtök úti í bæ“ þurfi meira fjármagn frá ríkinu ráði litlu þar um.
Henni þyki starf samtakanna mikilvægt, en vill heldur að framlög til samtaka á borð við Ljósið ættu að ráðast í gegnum langtímasamninga við ríkið en ekki með einskiptisframlögum hverju sinni. Þetta kom fram í svari Kristrúnar við fyrirspurn Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag. Samkvæmt fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi er ekki gert ráð fyrir 200 milljón króna viðbótarframlagi til Ljóssins, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðvar fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Sjá einnig: Framlög til Ljóssins skorin niður um 200 milljónir Jens Garðar kvaðst taka undir fyrri orð forsætisráðherra um að það sé gríðarlega mikilvægt að fara vel með skattfé og það þurfi að forgangsraða, en á sama tíma telji hann óskiljanlegt að ríkið hyggist fella niður tímabundið aukin framlög til Ljóssins. Samtökin bjóði þjónustu sem heilbrigðiskerfið treysti á og að úttekt bendi til þess að starfsemi samtakanna skili meiru inn í þjóðarbúið með því að veita þjónustu sem ekki sé annars staðar að fá í heilbrigðiskerfinu. Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, kallaði eftir afstöðu forsætisráðherra til málsins.Vísir/Vilehlm „Þetta er 40% niðurskurður þar sem um sex hundruð manns njóta þar aðstoðar og endurhæfingar í hverjum mánuði. Þúsundir hafa nýtt sér þessa þjónustu undanfarin ár. Þúsundir,” sagði Jens Garðar. Í fyrirspurn sinni setti Jens Garðar upphæðina í samhengi við ýmis önnur verkefni sem ríkið muni verja pening í, til að mynda 350 milljónir sem fari í starfslokasamning við vararíkissaksóknara. Hann kallaði eftir afstöðu forsætisráðherra um forgangsröðun fjármuna í því samhengi. „Dramatísk framsetning“ Í svari sínu benti forsætisráðherra á að um væri að ræða einskiptisframlag sem gert hafi verið ráð fyrir af hálfu fjárlaganefndar á síðasta kjörtímabili sem falli sjálfkrafa niður. „Það er fjöldinn allur af slíkum framlögum til slíkra stofnana sem falla niður á hverju ári. Það er mín persónulega skoðun að það þarf auðvitað að setja framlög almennt til slíkra félagasamtaka í fastari skorður og það sé ekki þannig að þetta komi inn svona einskiptis. Það krefst frekari yfirlegu,“ svaraði Kristrún. „Ég veit að framsetningin er dramatísk hjá háttvirtum þingmanni en höldum okkur við staðreyndir mála. Þetta er ekki framlag sem er búið að vera hér í mörg ár. Þetta var einskiptisframlag. Það breytir því ekki að ég tek að fullu undir með háttvirtum þingmanni að mjög góð þjónusta á sér stað hjá Ljósinu,“ sagði Kristrún ennfremur. Allir vilji gera betur við samtök á borð við Ljósið Í síðari fyrirspurn sinni spurði Jens Garðar hvort það kæmi til greina að mati Kristrúnar „að afturkalla boðaðan sparnað til Ljóssins,“ líkt og þingmaðurinn orðaði það. Í síðara svari sínu ítrekaði Kristrún að hún tæki undir með þingmanninum um að hjá Ljósinu færi fram mikilvæg starfsemi, en það sama megi segja um mörg önnur samtök á Íslandi sem sum séu fjármögnuð að hluta af ríkinu og önnur ekki. „Það er enginn að gera lítið úr framlagi Ljóssins. Mér finnst hins vegar sérstakt að í kerfi, þar sem mörg hundruð milljarðar eru undir, sé ég annars vegar að fá fyrirspurn þar sem er verið að gera athugasemd við að það sé verið að fylgjast vel með fjárútlátum í einkarekstur sem fer í gegnum sjúkratryggingar, sem getur hljóðað upp á milljarða króna, í það að það vera að spyrja mig um mína persónulegu afstöðu til þess hvort ákveðin samtök úti í bæ gætu þegið nokkrar milljónir í viðbót. Auðvitað myndum við öll vilja geta gert betur við slík samtök en við þurfum að horfa kerfislægt á slík útgjöld,“ svaraði Kristrún. Hún sé á þeirri skoðun að framlag af þessum toga þurfi að fara inn í langtímasamninga, frekar en að vera ákvarðað með einskiptisframlagi, og beindi því síðan til Ölmu Möller heilbrigðisráðherra að svara til um það hvernig samningar standa við Ljósið. Þá sé það í höndum fjárlaganefndar en ekki hennar sjálfrar að ákvarða hvort þessu verði breytt frá því sem fyrirliggjandi fjárlagafrumvarp gerir ráð fyrir.
Krabbamein Heilbrigðismál Fjárlagafrumvarp 2026 Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Sjá meira