Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum Magnús Jochum Pálsson skrifar 24. september 2025 16:00 Auðunn Blöndal er gríðarlega spenntur fyrir því að opna hverfisstaðinn sem þó er ekki kominn með nafn. Vísir/Vilhelm/Reitir Parið Auðunn Blöndal og Rakel Þormarsdóttir hyggjast opna veitingastað á neðri hæð verslunarkjarnans Grímsbæjar. Hjónin hafa verið með hugmyndina í maganum lengi en þurft að bíða eftir réttu staðsetningunni. Hvorki er um sportbar né skemmtistað að ræða heldur notalegan hverfisstað. Nýverið hafa margir íbúar í Fossvogi lýst yfir áhyggjum vegna framkvæmda sem nú standa yfir í verslunarkjarnanum Grímsbæ. Í hverfisgrúppu 108 hverfis hafa farið af stað sögusagnir um að þar eigi að opna sportbar. Allt að gerast í Grímsbæ.Vísir/Anton Brink Sá orðrómur á ekki við nein rök að styðjast samkvæmt Auðunni Blöndal, útvarps- og sjónvarpsmanni, sem stendur að baki staðnum ásamt kærustu sinni, fyrirsætunni Rakel Þormarsdóttur. „Konseptið er hverfisstaður, notalegur staður í hverfinu í anda Kaffi Vest og Yndisauka,“ segir Auðunn um staðinn í samtali við fréttastofu. „Ég er búinn að búa í Fossvoginum í tæp tíu ár og við konan saman í sjö ár og hefur alltaf fundið hvað þetta hefur vantað: Kjarni þar sem fólk getur hist, fengið sér góðan bita og átt notalega stund.“ Auðunn og Rakel hafa komið sér upp vísitölufjölskyldu í Fossvogi. Hvenær kviknar þessi hugmynd? „Við erum búin að reyna í fimm eða sex ár að opna þennan stað. Við erum búin að hitta Reiti oftar en tíu sinnum. Við gáfumst bara ekki upp en fundum alltaf að þetta þyrfti að vera rétt staðsetning,“ segir hann. „Þetta er á besta stað fyrir allt 108 hverfið þannig okkur fannst þetta algjör draumur þegar þetta var séns.“ Er komið nafn? „Nafnið er ekki komið en það eru nokkur í hattinum,“ segir hann. Skilur áhyggjur fólks og vill vinna í samráði við íbúa Staðurinn verður á neðri hæð Grímsbæjar þar sem Krambúðin var áður. Núna standa yfir framkvæmdir sem munu að sögn Auðuns taka allavega þrjá mánuði. „Það voru nokkrir búnir að vara mig við hvað þetta tekur allt langan tíma en þetta hefst að lokum,“ segir hann. Framkvæmdirnar við Grímsbæ eru núna í fullum gangi. Staðurinn er með rekstrarleyfi í flokki þrjú sem gerir eigendum kleift að bjóða upp á áfengi og spila tónlist. Staðurinn verður þó hvorki skemmtistaður né sportbar að sögn Auðuns. „Þetta þýðir að við megum vera með opið til eitt, hvort sem það verður opnunartíminn eða ekki. Það á bara eftir að koma í ljós. Við erum ekki einu sinni búin að ræða nákvæmlega hvernig við ætlum að hafa það, hvort það verður sumartími eða vetrartími,“ segir hann. Auðunn segist skilja áhyggjur íbúa og hefur rætt við nokkra sem búa nálægt húsinu um verkefnið. Unnið er að húsinu bæði að utan og innan.Vísir/Anton Brink „Ég sá einhvers staðar talað um að þetta yrði Sportbar, sem þetta verður alls ekki. Stemmingin á að vera notaleg,“ segir hann. „Til að svona staður gangi þarf hverfið að halda með honum. Þannig ég vil endilega gera þetta í samráði við þau um hvað megi betur fara og annað.“ Næstu mánuði verða því undirlagðir framkvæmdum og frekari þróun á verkefninu og nafninu. Auðunn bindur vonir við að staðurinn opni annað hvort í desember og janúar. „Og ég hef fundið það í hverfinu öll þessi ár að það eru flestir sammála um það að það vanti nákvæmlega einhvern svona stað.“ Lumar þú á frétt? Sendu okkur fréttaskot á visir.is/frettaskot. Fullum trúnaði er heitið auk þess sem lesendur geta sent nafnlausar ábendingar. Reykjavík Veitingastaðir Menning Tímamót Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira
Lumar þú á frétt? Sendu okkur fréttaskot á visir.is/frettaskot. Fullum trúnaði er heitið auk þess sem lesendur geta sent nafnlausar ábendingar.
Reykjavík Veitingastaðir Menning Tímamót Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira