Runólfur á toppi tekjulistans yfir launahæstu embættismennina og forstjórana Lovísa Arnardóttir skrifar 19. ágúst 2025 13:01 Runólfur Pálsson er forstjóri Landspítalans og er á toppi listans þegar teknir eru saman embættismenn, forstjórar og starfsmenn hins opinbera. Vísir/Vilhelm Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, trónir á toppi listans yfir launahæstu embættismenn, forstjóra og starfsmenn hins opinbera samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Samkvæmt blaðinu var Runólfur með um 7,2 milljónir í laun á mánuði í laun í fyrra. Mikilvægt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Einnig var fjallað um laun Runólfs við sama tilefni fyrir tveimur árum og þá var hann með um 4,5 milljónir í laun. Í samtali við fréttastofu segir Runólfur að hækkunina megi rekja til úttektar á séreignarsparnaði í tengslum við húsnæðismál. Launin séu svipuð og þau voru fyrir tveimur árum, í kringum 4,5 milljónir. Næstur á eftir Runólfi á listanum er Einar Mathiesen, fyrrverandi framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma Landsvirkjunar, með rúmar sex milljónir á mánuði. Þriðji er svo Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar með 4,5 milljónir. Fjórði er Óskar Jósefsson forstjóri Ríkiseigna: Framkvæmdasýslunnar. Fimmta á listanum, og fyrsta konan, er Guðlaug Rakel Jónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir er efst kvenna á listanum. Aðrir á listanum eru til dæmis Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, með 3,8 milljónir og Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri OR, með 3,4 milljónir. Aðrir sem eru með laun í kringum það eru Tryggvi Gunnarsson, fyrrverandi umboðsmaður Alþingis, með 3,2 milljónir, og Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Náttúruhamfarartrygginga Íslands, með tæpar 3,2 milljónir. Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri, er með tæpar þrjár milljónir í laun samkvæmt Tekjublaðinu, og Haraldur Líndal Haraldsson, ráðgjafi og fyrrverandi bæjarstjóri, er með 2,7 milljónir í laun. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri er með tæpar þrjár milljónir í laun samkvæmt blaðinu. Vísir/Ívar Fannar Þá er Bryndís Hlöðversdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, með tæpar 2,7 milljónir og nafna hennar Bryndís Hrafnkelsdóttir, forstjóri Happdrættis Háskóla Íslands, með 2,5 milljónir í laun. Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Póstsins, er einnig með um 2,5 milljónir í laun. Það er Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, einnig með og Anna Margrét Björnsson, upplýsingafulltrúi hjá franska sendiráðinu. Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, er samkvæmt Tekjuablaðinu með rúmar 2,4 milljónir og Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, er með 2,3 milljónir. Það er Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari einnig með í laun. Með um 2,2 milljónir eru til dæmis Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu og Ragna Árnadóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri, sem nú er forstjóri Landsnets. Um tvær milljónir Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri er með rúmar tvær milljónir í laun og Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari líka. Snorri Olsen ríkisskattstjóri er einnig með um tvær milljónir og Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, og Hermann Jónasson, forstjóri HMS. Sigríður Björk ríkislögreglustjóri er með rúmar tvær milljónir í laun. Vísir/Vilhelm Ef litið er til þeirra sem eru með minna en tvær milljónir má til dæmis sjá að Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari, er með rétt tæpar tvær milljónir og Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri heilsugæslu höfuðborgarsvæðins, og Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrverandi vararíkissaksóknari líka. Forstjóri með lægri laun en aðstoðarforstjóri Athygli vekur að forstjóri ÁTVR, Ívar J Arndal, sem lætur af störfum síðar á árinu, er með lægri laun, miðað við Tekjublaðið, en aðstoðarforstjórinn, Sigrún Ósk. Hann er skráður með um 1,9 milljónir í laun en hún með 2,5 tæpar. Á listanum er einnig Fanney Rós Þorsteinsdóttir ríkislögmaður með um 1,9 milljónir og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu, með 1,9 tæpar milljónir. Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri, er einnig skráður á listann með um 1,8 milljónir í laun. Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2023 sem var greiddur árið 2024. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við. Fréttin hefur verið leiðrétt en fyrst stóð að Haraldur Líndal Haraldsson upplýsingafulltrúi Fjarðabyggðar væri með 2,7 milljónir í laun. Hið rétta er að faðir hans og alnafni er með þessi laun, hann er ráðgjafi og fyrrverandi bæjarstjóri. Leiðrétt klukkan 14:40 þann 19.8.2025. Tekjur Landspítalinn Rekstur hins opinbera Kjaramál Stjórnsýsla Tengdar fréttir Þetta voru tekjuhæstu forstjórarnir á síðasta ári Árni Sigurðsson, forstjóri Marel, er tekjuhæsti forstjórinn í nýju blaði Frjálsrar verslunar yfir tekjur Íslendinga árið 2024. Árni var með rúmar 40 milljónir á mánuði í tekjur. 19. ágúst 2025 12:01 Sunneva veltir Evu Ruzu úr sessi Sunneva Eir Einarsdóttir er tekjuhæst íslenskra áhrifavalda í ár og hefur hún þar með velt Evu Ruzu Miljevic úr efsta sætinu. Á eftir þeim koma Birgitta Líf Björnsdóttir, Páll Orri Pálsson og Reynir Bergmann. 19. ágúst 2025 11:14 Mest lesið Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira
Mikilvægt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Einnig var fjallað um laun Runólfs við sama tilefni fyrir tveimur árum og þá var hann með um 4,5 milljónir í laun. Í samtali við fréttastofu segir Runólfur að hækkunina megi rekja til úttektar á séreignarsparnaði í tengslum við húsnæðismál. Launin séu svipuð og þau voru fyrir tveimur árum, í kringum 4,5 milljónir. Næstur á eftir Runólfi á listanum er Einar Mathiesen, fyrrverandi framkvæmdastjóri vinds og jarðvarma Landsvirkjunar, með rúmar sex milljónir á mánuði. Þriðji er svo Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar með 4,5 milljónir. Fjórði er Óskar Jósefsson forstjóri Ríkiseigna: Framkvæmdasýslunnar. Fimmta á listanum, og fyrsta konan, er Guðlaug Rakel Jónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir er efst kvenna á listanum. Aðrir á listanum eru til dæmis Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, með 3,8 milljónir og Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri OR, með 3,4 milljónir. Aðrir sem eru með laun í kringum það eru Tryggvi Gunnarsson, fyrrverandi umboðsmaður Alþingis, með 3,2 milljónir, og Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Náttúruhamfarartrygginga Íslands, með tæpar 3,2 milljónir. Stefán Eiríksson, útvarpsstjóri, er með tæpar þrjár milljónir í laun samkvæmt Tekjublaðinu, og Haraldur Líndal Haraldsson, ráðgjafi og fyrrverandi bæjarstjóri, er með 2,7 milljónir í laun. Stefán Eiríksson útvarpsstjóri er með tæpar þrjár milljónir í laun samkvæmt blaðinu. Vísir/Ívar Fannar Þá er Bryndís Hlöðversdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu, með tæpar 2,7 milljónir og nafna hennar Bryndís Hrafnkelsdóttir, forstjóri Happdrættis Háskóla Íslands, með 2,5 milljónir í laun. Þórhildur Ólöf Helgadóttir, forstjóri Póstsins, er einnig með um 2,5 milljónir í laun. Það er Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, einnig með og Anna Margrét Björnsson, upplýsingafulltrúi hjá franska sendiráðinu. Gunnar Tryggvason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, er samkvæmt Tekjuablaðinu með rúmar 2,4 milljónir og Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, er með 2,3 milljónir. Það er Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari einnig með í laun. Með um 2,2 milljónir eru til dæmis Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu og Ragna Árnadóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri, sem nú er forstjóri Landsnets. Um tvær milljónir Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri er með rúmar tvær milljónir í laun og Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari líka. Snorri Olsen ríkisskattstjóri er einnig með um tvær milljónir og Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, og Hermann Jónasson, forstjóri HMS. Sigríður Björk ríkislögreglustjóri er með rúmar tvær milljónir í laun. Vísir/Vilhelm Ef litið er til þeirra sem eru með minna en tvær milljónir má til dæmis sjá að Ólafur Þór Hauksson, héraðssaksóknari, er með rétt tæpar tvær milljónir og Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri heilsugæslu höfuðborgarsvæðins, og Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrverandi vararíkissaksóknari líka. Forstjóri með lægri laun en aðstoðarforstjóri Athygli vekur að forstjóri ÁTVR, Ívar J Arndal, sem lætur af störfum síðar á árinu, er með lægri laun, miðað við Tekjublaðið, en aðstoðarforstjórinn, Sigrún Ósk. Hann er skráður með um 1,9 milljónir í laun en hún með 2,5 tæpar. Á listanum er einnig Fanney Rós Þorsteinsdóttir ríkislögmaður með um 1,9 milljónir og Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu, með 1,9 tæpar milljónir. Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri, er einnig skráður á listann með um 1,8 milljónir í laun. Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2023 sem var greiddur árið 2024. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við. Fréttin hefur verið leiðrétt en fyrst stóð að Haraldur Líndal Haraldsson upplýsingafulltrúi Fjarðabyggðar væri með 2,7 milljónir í laun. Hið rétta er að faðir hans og alnafni er með þessi laun, hann er ráðgjafi og fyrrverandi bæjarstjóri. Leiðrétt klukkan 14:40 þann 19.8.2025.
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2023 sem var greiddur árið 2024. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Tekjur Landspítalinn Rekstur hins opinbera Kjaramál Stjórnsýsla Tengdar fréttir Þetta voru tekjuhæstu forstjórarnir á síðasta ári Árni Sigurðsson, forstjóri Marel, er tekjuhæsti forstjórinn í nýju blaði Frjálsrar verslunar yfir tekjur Íslendinga árið 2024. Árni var með rúmar 40 milljónir á mánuði í tekjur. 19. ágúst 2025 12:01 Sunneva veltir Evu Ruzu úr sessi Sunneva Eir Einarsdóttir er tekjuhæst íslenskra áhrifavalda í ár og hefur hún þar með velt Evu Ruzu Miljevic úr efsta sætinu. Á eftir þeim koma Birgitta Líf Björnsdóttir, Páll Orri Pálsson og Reynir Bergmann. 19. ágúst 2025 11:14 Mest lesið Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira
Þetta voru tekjuhæstu forstjórarnir á síðasta ári Árni Sigurðsson, forstjóri Marel, er tekjuhæsti forstjórinn í nýju blaði Frjálsrar verslunar yfir tekjur Íslendinga árið 2024. Árni var með rúmar 40 milljónir á mánuði í tekjur. 19. ágúst 2025 12:01
Sunneva veltir Evu Ruzu úr sessi Sunneva Eir Einarsdóttir er tekjuhæst íslenskra áhrifavalda í ár og hefur hún þar með velt Evu Ruzu Miljevic úr efsta sætinu. Á eftir þeim koma Birgitta Líf Björnsdóttir, Páll Orri Pálsson og Reynir Bergmann. 19. ágúst 2025 11:14