„Minn draumur er að fá að spila í úrslitakeppninni“ Stefán Árni Pálsson skrifar 6. júní 2025 10:33 Hilmir mun styrkja lið Álftnesinga á næsta tímabilið. vísir/bjarni Besti ungi leikmaður Bónus-deildar karla hefur samið við Álftanes. Hann vill taka þátt í þeirri uppbyggingu sem er í gangi hjá félaginu.
Hinn tvítugi Hilmir Arnarson gerir tveggja ára samning við Álftanes. Hilmir var valinn besti ungi leikmaður Bónus-deildar karla eftir síðasta tímabil en þá lék hann með Haukum sem féllu niður í 1. deild. Álftanes fór alla leið í undanúrslit í Bónusdeildinni. „Mér finnst það vera gott skref að fara í Álftanes og þar er mikil uppbygging í gangi. Þeir hafa verið að taka alltaf næsta skref eftir hvert einasta tímabil. Mér finnst Kjartan Atli mjög spennandi þjálfari og hlakka til að vinna með honum,“ segir Hilmir í Sportpakkanum á Stöð 2 í gærkvöldi. Fékk sjálfstraust Eftir áramót var Hilmir í stóru hlutverki hjá liðinu og skoraðu þá rúm tíu stig í leik, í mjög sterkri deild. Hilmir hefur leikið á fjórða tug leikja fyrir yngri landslið Íslands og verið í lykilhlutverki. Hann er hluti af mögnuðu U-18 ára landsliði sem tryggði sér sæti í A-deild Evrópukeppninnar. „Maður fékk traustið eftir áramót og var vaxandi eftir því sem leið á tímabilið og með því fékk ég meira sjálfstraust. Þetta hlutverk gerði mikið fyrir mig og mun hjálpa mér að spila áfram í þessari deild. Það var alveg partur af mér sem vildi koma Haukum á þann stað sem þeir eiga heima en þegar Álftanes hrindi þá var þetta aldrei nein spurning. Minn draumur er að fá að spila í úrslitakeppninni og komast langt.“ Hilmir leiddi deildina í vítanýtingu eða 95,7 prósent en Álftnesingar voru heilt yfir með nokkuð dapra vítanýtingu á tímabilinu. Getur Hilmir ekki kennt Álftnesingum að taka víti? „Jú jú, ég get gert það.“
Bónus-deild karla UMF Álftanes Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Sjá meira