Erlent

Náðar raunveruleikastjörnur sem sviku tug­milljónir dala út úr bönkum

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Donald Trump hefur komið þeim Todd og Julie Chrisley til bjargar og náðað þau. Todd fékk tólf ára dóm en Julie sjö og hafa þau setið inni frá janúar 2023.
Donald Trump hefur komið þeim Todd og Julie Chrisley til bjargar og náðað þau. Todd fékk tólf ára dóm en Julie sjö og hafa þau setið inni frá janúar 2023. Getty

Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að náða hjónin Todd og Julie Chrisley sem voru með raunveruleikaþættina Chrisley Knows Best og fengu áralanga fangelsisdóma fyrir tugmilljóna lánasvik og skattaundanskot.

Chrisley-hjónin voru dæmd árið 2022 fyrir að leggja á ráð um að svíkja meira en 30 milljónir dala (um 3,8 milljarða íslenskra króna í dag) í lánsfé með notkun falsaðra skjala. Hjónin voru einnig fundin sek um skattsvik og að hylja tekjur sínar meðan þau lifðu óhóflegum lífsstíl.

Todd Chrisley lýsti sig gjaldþrota og losnaði þannig undan því að greiða meira en tuttugu milljónir dala í lán. Todd hlaut tólf ára dóm og Julie sjö ár en auk þess var þeim gert að endurgreiða um 17,8 milljónir dala.

Greindi börnunum frá náðuninni

Margo Martin, aðstoðarmaður Trump, birti myndband af forsetanum á X (áður Twitter) þar sem hann hringdi í börn hjónanna til að greina þeim frá náðuninni. „Trump veit best!“ skrifaði Martin í færslunni.

„Foreldrar þínir verða frjáls og hrein og ég vona að við getum gert það fyrir morgundaginn,“ sagði Trump í símtalinu við Savönnuh Chrisley.

„Þau hafa fengið frekar harkalega meðhöndlun miðað við það sem ég heyri,“ sagði forsetinn stuttu seinna í samtalinu.

Svo virðist sem Trump ætli að náða hjónin í dag en ekki er ljóst hvenær heildarlisti yfir náðanir Trump síðustu daga verður gerður opinber. 

Trump hefur náðað fólk í gríð og erg undanfarna mánuði, í fyrradag lýsti hann því yfir að hann hygðist náða Scott Jenkins, fógeta sem var dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir mútuþægni og annarskonar spillingu.

Í janúar náðaði forsetinn Ross Ulbricht, stofnanda vefsins Silk Road, þar sem ólöglegur varningur eins og fíkniefni og vopn gengu kaupum og sölum um langt skeið. Í sama mánuði náðaði hann alla þá sem tóku þátt í árásinni á þinghús Bandaríkjanna í janúar 2021.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×