Jakob Valgeir lét Guðbjart bróður sinn fara Jakob Bjarnar skrifar 20. maí 2025 14:19 Jakob Valgeir (th) lét bróður sinn Guðbjart fara frá fyrirtækinu og settist sjálfur í stól framkvæmdastjóra. vísir Guðbjartur Flosason framkvæmdastjóri Jakobs Valgeirs ehf var látinn fara í lok mars en hann hefur starfað hjá fyrirtækinu frá blautu barnsbeini.
Jakob Valgeir Flosason hefur verið helsti eigandi útgerðarinnar þó fyrirtækið sé að sjötíu og fimm prósentum skrifað á eiginkonu hans Björgu Hildi Daðadóttur. Guðbjartur á 15 prósent og Brynjólfur Flosason tíu. Eins og glöggir taka eftir bera Jakob Valgeir og Guðbjartur, og reyndar Brynjólfur einnig, sama föðurnafn og því hér um bræðrarimmu að ræða; Jakob Valgeir lét bróður sinn fara. Um fátt er meira talað í Bolungarvík og á Vestfjörðum öllum enda fyrirtækið afar öflugt sjávarútvegsfyrirtæki og öflugt fjárfestingarfélag að auki. Á landsvísu er þetta 15. stærsta sjávarútvegsfyrirtækið samkvæmt hlutdeild í aflamarki. Heimildin greindi frá því 2021 að þeir bræður, Guðbjartur og Jakob Valgeir Flosasynir hafi verið þeir sem hæstu skatta greiddur á Vestfjörðum öllum. Rætt hefur verið um ósætti milli þeirra bræðra en Guðbjartur gefur ekkert fyrir það, hann segist ekki ætla sér að drulla yfir einn né neinn. „Það var bara komið að leiðarlokum,“ segir hann í samtali við blaðamann Vísis. Guðbjartur hefur verið hjá fyrirtækinu í 21 ár núna samfellt en hefur starfað hjá fyrirtækinu frá því að hann var krakki. Hann segir að það verði aðrir að svara fyrir það hver hafi komið í hans stað. Og það séu þau Jakob Valgeir og Björg Hildur Daðadóttir sem séu í forsvari fyrir fyrirtækið. Þér hefur sem sagt verið ýtt út? „Já, ég var látinn fara. Það var kannski komin einhver leiði í þetta samstarf, þegar maður hefur verið svona lengi í þessu.“ Guðbjartur segir þetta fínt, hann sé nú heimavinnandi húsmóðir en þau séu fimm manna fjölskylda. „Það væsir ekkert um mig. Ég hef það ágætt. Ég held að það sé alveg áhugi fyrir mér á vinnumarkaði, ég held að ég sé nú ekki svo slæmur að ég finni hvergi vinnu. Ég hef sterkt bakland í kringum mig og er þokkalega liðinn,“ segir Guðbjartur sallarólegur.
Vistaskipti Sjávarútvegur Bolungarvík Ísafjarðarbær Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira