Síðasti dropinn á sögulegri stöð Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 12. maí 2025 18:50 N1 við Ægisíðu var fyrsta sjálfsafgreiðslustöðin á Íslandi. Vísir/Anton Brink Búið er að loka dælunum á bensínstöð N1 við Ægisíðu fyrir fullt og allt. Síðasta dropanum var dælt á stöðinni um síðustu mánaðamót.
Magnús Hafliðason forstjóri N1 staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. „Þetta er náttúrlega hluti af samkomulagi við Reykjavíkurborg frá 2021 sem felur í sér lokanir á nokkrum staðsetningum sem við og fleiri á markaðnum gerðum. Þetta er að raungerast,“ segir Magnús. Tæp ellefu ár eru síðan fyrst var tilkynnt að bensínstöðinni yrði lokað. Til stóð að hætta rekstrinum í síðasta lagi í janúar í fyrra en framkvæmdin dróst á langinn. Um er að ræða sögulega bensínstöð frá 1957 en hún var fyrsta sjálfsafgreiðslustöðin á Íslandi. Lokunin helst í hendur við opnun nýrrar stöðvar á Granda sem þegar hefur tekið til starfa. Bifreiðaþjónustan á Ægisíðu mun að sögn Magnúsar þó starfa áfram um eitthvert skeið. Kennileitið fái áfram að njóta sín Magnús sýnir óánægju með lokunina meðal Vesturbæinga skilning. „Maður skilur að þetta er rótgróin stöð í hverfinu og hefur þjónustað hverfið um áratugaskeið. Þá er eðlilegt að fólk vilji halda þessu áfram og sjái eftir þessu þjónustuframboði.“ Þó sé lítið við N1 að sakast enda sé þetta sem fyrr segir hluti af skipulagi borgarinnar. Nýjar bensíndælur hafa verið settar upp við Krónuna Granda.Vísir/Anton Brink Þrjár arkitektastofur, Trípolí, Gríma arkitektar og Sei Studio, lögðu fram tillögur að nýrri uppbyggingu á lóðinni við Ægisíðu 102, þar sem bensínstöðinni hefur nú verið lokað. Á vef Yrkis, fasteignafélags Festi segir að valnefnd Festi hafi valið að tillaga arkitektastofunnar Trípólí verði fyrsti valkostur nefndarinnar í frekari úrvinnslu og þróun lóðarinnar að breyttu hlutverki til framtíðar. Sjá einnig: Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Í tillögu Trípólí sé meðal annars gert ráð fyrir að núverandi mannvirki standi að mestu leyti áfram og sé ætlað að mynda áfram sterkt kennileiti á staðnum. Í kringum það rísi síðan randbyggð með vistlegum torg- og dvalarsvæðum og að bílaumferð verði beint í bílakjallara undir suðurhluta lóðarinnar í næst götu. Frekari þróun mun eiga sér stað í samvinnu við tillögu höfunda og í samráði við Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar.
Festi Bensín og olía Bílar Reykjavík Skipulag Tengdar fréttir N1 lokar bensínstöðinni við Ægisíðu Bensínstöðinni verður lokað í haust en N1 hefur tekið kauptilboði í fasteignina. 30. maí 2014 18:30 Berjast um bestu tillöguna Arkítektastofurnar Trípolí, Gríma arkitektar og Sei Studio keppast um bestu tillöguna að þróun lóðar Festar við Ægisíðu 102 í Reykjavík sem í dag hýsir þjónustustöð N1. Íbúabyggð kemur á svæðið og lofar Festi góðu samtali í nágrenninu. 17. janúar 2024 17:25 Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira
N1 lokar bensínstöðinni við Ægisíðu Bensínstöðinni verður lokað í haust en N1 hefur tekið kauptilboði í fasteignina. 30. maí 2014 18:30
Berjast um bestu tillöguna Arkítektastofurnar Trípolí, Gríma arkitektar og Sei Studio keppast um bestu tillöguna að þróun lóðar Festar við Ægisíðu 102 í Reykjavík sem í dag hýsir þjónustustöð N1. Íbúabyggð kemur á svæðið og lofar Festi góðu samtali í nágrenninu. 17. janúar 2024 17:25