Kylian Mbappé var rekinn af velli þegar Real Madrid bar sigurorð af Alavés, 0-1, í spænsku úrvalsdeildinni í dag.
Eduardo Camavinga kom Real Madrid yfir með góðu skoti yfir utan vítateig á 34. mínútu.
Fjórum mínútum síðar fékk Mbappé rautt spjald fyrir gróft brot á Antonio Blanco, miðjumanni Alavés.
Þrátt fyrir að vera manni færri í rúman hálfleik hélt Real Madrid út og fagnaði mikilvægum sigri.
Real Madrid er með 66 stig í 2. sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Barcelona. Bæði lið eiga eftir að leika sjö leiki.