„Að fá sér Bryndísarpizzu skiptir máli“ Lovísa Arnardóttir skrifar 6. apríl 2025 12:24 Hrefna Sætran hannaði pizzuna en allur ágóði sölunnar rennur til Minningarsjóðs Bryndísar Klöru. Samsett Í ár rennur allur ágóði góðgerðarpizzu Domino´s í Minningarsjóð Bryndísar Klöru. Sala pizzunnar hefst á morgun, mánudaginn 7. apríl og stendur til 10. apríl. Bryndís Klara var starfsmaður Domino's. „
Það er ómetanlegt að Domino’s láti allt söluandvirðið renna til sjóðsins en ekki einungis ágóðann,“ segir Birgir Karl Óskarsson, faðir Bryndísar Klöru, í fréttatilkynningu um málið. „Að fá sér Bryndísarpizzu, hefur stóran boðskap því þannig minnumst við Bryndísar Klöru og sameinumst í að gera samfélagið betra í hennar nafni.“ Birgir Karl Pizzan er samsett af meistarakokknum Hrefnu Rós Sætran og er sannkölluð sælkerapizza sem inniheldur meðal annars pepperoni, mortadella skinku, burrata ost og pistasíur. Minningarsjóður Bryndísar Klöru var stofnaður til að heiðra líf Bryndísar Klöru, með það að markmiði að vernda börn gegn ofbeldi og efla samfélag þar sem samkennd og samvinna eru í forgrunni. „Bryndís Klara var stelpa með stórt hjarta. Hún var hugulsöm og hugrökk og hafði sérstakt lag á að sjá þá sem öðrum yfirsást. Eftir þennan hörmulega atburð á Menningarnótt, ákváðum við að nafn hennar skyldi og yrði að standa fyrir breytingar, fyrir öruggari æsku barna og unglinga, og samfélagið í heild sinni,“ segir Iðunn Eiríksdóttir, móðir Bryndísar Klöru. Auk góðgerðarpizzunnar verða seldar fallegar, bleikar svuntur með nafni og merki Minningarsjóðsins en bleikur var uppáhaldslitur Bryndísar Klöru. Svunturnar verða seldar í Kringlunni dagana 7. - 13. apríl eða á meðan birgðir endast. Bryndís Klara starfsmaður Domino’s Bryndís Klara var starfsmaður Domino’s og Domino’s vill heiðra minningu hennar með framlagi í sjóðinn. „Við hjá Domino’s erum hluti af samfélaginu og Bryndís Klara var mikils metin hluti af teyminu okkar. Þess vegna viljum við öll, starfsfólk Domino’s á Íslandi, að Góðgerðarpizzan 2025 verði tileinkuð minningu hennar og sala pizzunnar fari óskipt til minningarsjóðsins,“ segir Ásmundur Atlason, markaðsstjóri Einnig verður hægt að kaupa svuntu til styrktar minningarsjóðnum. Aðsend „Þess vegna viljum við öll, starfsfólk Domino’s á Íslandi, að Góðgerðarpizzan 2025 verði tileinkuð minningu hennar og sala pizzunnar fari óskipt til minningarsjóðsins,“ segir Ásmundur. Samstarfið skipti máli Síðan 2013 hefur Domino’s selt Góðgerðarpizzuna á hverju ári þar sem öll sala hefur farið óskipt til góðgerðarmála. „Markmið minningarsjóðsins er að styðja við verkefni sem vernda börn gegn ofbeldi og efla samfélag þar sem samkennd og samstaða er í forgrunni. Við viljum búa í samfélagi þar sem kærleikurinn ræður ríkjum,“ segir Guðrún Inga Sívertsen, formaður minningarsjóðsins. „Þess vegna skiptir samstarfið við Domino’s okkur miklu máli, í raun er þetta ómetanlegt framtak hjá þeim – því með hverri pizzu sem seld er í hennar nafni, minnumst við hennar og stöndum saman um að bæta samfélagið okkar,“ segir Guðrún Inga.
Matur Stunguárás við Skúlagötu Vopnaburður barna og ungmenna Ofbeldi gegn börnum Ofbeldi barna Veitingastaðir Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira