Sérstakt að túlka tillögur almennings sem stríðsyfirlýsingu Vésteinn Örn Pétursson og Jón Þór Stefánsson skrifa 5. mars 2025 19:45 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra á kynningarfundi um hagræðingartillögurnar í gær. Vísir/Anton Brink Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segist stoltur af almenningi vegna þess hve umhugað honum sé um rekstur ríkissjóðs. Hann segir tal um að í tillögum um hagræðingu í ríkisrekstri felist stríðsyfirlýsing til opinberra starfsmanna innistæðulaust.
Hagræðingartillögur sem fela í sér fækkun Hæstaréttardómara, afnám áminngarskyldu á opinberum vinnumarkaði og að nýsköpunasjóður verði lagður niður hafa mætt harðri gagnrýni. Ríkisstjórnin hefur nú úr 60 tillögum að velja. Þær eru unnar úr þúsundum tillagna sem bárust frá almenningi um hvernig megi hagræða í rekstri ríkisins. Áætlað er að þær tillögur sem nefndin færði fram geti skilað meira en 70 milljarða hagræðingu á tímabilinu 2026 til 30. Þar er meðal annars lagt til að fækka Hæstaréttardómurum, leggja niður nýsköpunarsjóð og afnema áminningarskyldu í lögum um opinbera starfsmenn. Allt eru þetta tillögur sem viðmælendur fréttastofu hafa eitthvað við að athuga. Forseti Hæstaréttar hefur meira að segja kvatt sér hljóðs: Í kvölfréttum Stöðvar 2 var rætt við fjármálaráðherra um tillögur starfshópsins, sem hann segir að hafi ekki verið sett nein ákveðin lína. „Nei. Almennt séð voru þetta tillögur almennings. Það voru örfáir hlutir sem búið var að ræða í ríkisstjórn sem ekki var ástæða fyrir að hafa þarna inni. En annars eru þetta fyrst og fremst tillögur almennings. Og það er mjög mikilvægt að halda því til haga að þetta eru ekki tillögur ríkisstjórnarinnar. Nú hefst pólitíska vinnan og það verður okkar að ákveða hverjar af þessum tillögur verða framkvæmdar,“ sagði Daði Már. Tillögurnar hafa vakið, eins og búast mátti við, hörð viðbrögð. Verður brugðist við þeim? „Eins og ég segi, nú fer þetta í hið pólitíska mat. Auðvitað tökum við tillit til athugasemda sem koma í því ferli. Það er hlutverk okkar að leggja mat á hvað af þessu er framkvæmanlegt og hverju við forgangsröðun. Það verður auðvitað gert í okkar meðferð.“ Nýsköpunarumhverfið sé holótt Tillaga um að nýsköpunarsjóðurinn Kría verði lagður niður mælist illa fyrir hjá forsvarsmanni félags sem einblínir á sprotafyrirtæki. „Þetta er bara ákveðinn þroski sem fjármögnunarumhverfið er að fara í gegnum, og við erum ennþá að vinna í þroskanum og svona apparat eins og nýsköpunarsjóðurinn Kría skiptir máli í að styðja við það þar sem eru holur í umhverfinu,“ segir Ragnheiður H. Magnúsdóttir, meðstofnandi Nordic Ignite. Nýsköpun hafi á undanförnum árið vaxið á síðustu árum. Ragnheiður segir að líta beri á nýsköpun sem fjárfestingu fremur en útgjaldalið. „Það að algjörlega henda út svona lið, svona stuðningsapparati, það væri svolítið glapræði, segir Ragnheiður“ Stríðsyfirlýsing ef af afnámi tilkynningarskyldu yrði Tillaga um afnám áminningarskyldu, áður en opinberum starfsmönnum er sagt upp, hefur sömuleiðis vakið hörð viðbrögð, til að mynda hjá formönnum BHM, Kennarasambandsins og BSRB. „Það er bara mjög skakkt að okkar mati ef það fyrsta sem á að gera gagnvart þessum hópi sé að skerða réttindi þeirra með því að auðvelda uppsagnir. Þegar talað er svona frjálslega um skerðingu réttinda eins og er gert þarna með þessum hætti, ef ríkisstjórnin tekur upp þessa tillögu, þá er það bara stríðsyfirlýsing að okkar mati,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB. Daði Már segist ekki geta séð hvernig þarna sé um stríðsyfirlýsingu að ræða. „Það finnst mér svolítið sérstakt því þá er þetta einhver stríðsyfirlýsing almennings, sem ég held að hafi ekki verið nein innistæða fyrir eða túlka með þessum hætti. Þetta eru tillögur almennings. Þetta eru orðin gömul lög og það hefur oft verið rætt um að endurskoða þau, að þarna séu úti einstaklingar sem telji það mikilvægt finnst mér ekkert skrýtið.“ Aðspurður um hvaða tillögur hugnist honum best nefnir hann afgullhúðun og einföldun á regluverki, sem hann segir að tali mjög til sín. Þá séu þarna hugmyndir um endurskoðun á lausafjárstýringu hjá ríkinu og opinber innkaup sem ríkisstjórnin hafi þegar verið að skoða. „Yfir höfuð er ég fyrst og fremst þakklátur og stoltur yfir því hvað íslensku þjóðinni finnst mikilvægt að ríkissjóður sé rekin skynsamlega.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Rekstur hins opinbera Stjórnsýsla Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira