Lífið

Barnaníðsmál Jay-Z vísað frá

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Jay Z er kvæntur tónlistarkonunni Beyonce og var vinur Combs til margra ára. Hjónin hafa ekki tjáð sig um ásakanirnar gegn Combs.
Jay Z er kvæntur tónlistarkonunni Beyonce og var vinur Combs til margra ára. Hjónin hafa ekki tjáð sig um ásakanirnar gegn Combs. Getty/Visionhaus/Joe Prior

Barnaníðsmál sem höfðað var á hendur bandaríska rapparanum Jay-Z hefur verið vísað frá eftir að kærandinn dró kæruna til baka.

Tónlistar- og athafnamaðurinn Shawn Carter, betur þekktur undir listamannsnafninu Jay-Z, var kærður fyrir að nauðga þrettán ára gamalli stúlku árið 2000. Frásögn konunnar, sem nú er á fertugsaldri, var á þann veg að hún hafi verið að reyna að komast inn á verðlaunahátíðina MTV Video Music Awards þegar bílstjóri Sean Combs, betur þekktur sem P Diddy, sem hefur staðið í málaferlum síðastliðið ár vegna raðar hrottalegra kynferðisbrota, hafi þá tekið hana tali og sagt að hún væri „sú týpa“ sem tónlistarmaðurinn leitaði að.

Bílstjórinn hafi þá ekið henni í heimahús þar sem hún var látin undirrita plagg sem kærandinn sagðist telja að hafi verið yfirlýsing um að hún myndi ekki greina frá því sem hún yrði vitni að. Konan segir að henni hafi verið boðinn drykkur sem innihélt efni sem gerði það að verkum að hún þurfti að leggjast niður.

Þá hafi hún farið inn í herbergi til að hvíla sig en að Carter og Combs hafi báðir komið stuttu síðar eftir henni og nauðgað henni, ónefnd fræg kona hafi horft á.

Konan hefur nú dregið kæru sína til baka í samráði við lögmann sinn. Hún hafði áður gengist við ósamræmi í málflutningi sínum en stóð við sögu sína. Bæði Carter og Combs neituðu sök og hafa gefið það út að þetta renni frekari stoð undir það að kæran hafi verið tilefnislaus.

„Þessari tilefnislausu kæru á hendur Jay-Z, sem hefði aldrei átt að fara fyrir dóm, hefur verið vísað frá. Í því að standa í fæturnar andspænis ógeðfelldum og fölskum ásökunum hefur Jay-Z gert það sem fáið gætu, spyr kemur úr þessu hreinn af sök,“ hefur ABC eftir Alex Spiro lögmanni Carter.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.