Uppgjör: Höttur-Stjarnan 83-86 | Stjarnan marði sigur á Hetti Gunnar Gunnarsson skrifar 13. febrúar 2025 21:00 vísir/Jón Gautur Stjarnan heldur áfram í toppbaráttu úrvalsdeildar karla í körfuknattleik eftir 86-89 sigur á Hetti á Egilsstöðum í kvöld. Leikurinn snérist gestunum í vil undir lokin. Hattarliðið á aðeins tölfræðilega möguleika eftir á að halda sér í deildinni. Leikurinn var jafn allan tímann sem sést að eftir þrjá leikhluta af fjórum var munurinn eitt stig. Fimmtán sinnum var jafnt í leiknum og tuttugu sinnum skiptust liðin á forustu. Stjarnan leiddi 17-18 eftir fyrsta leikhluta en í hálfleik var Höttur yfir 47-46. Liðið náði því með góðum endaspretti, komst yfir með 7-2 kafla. Höttur leiddi í þriðja leikhluta lengst af. Stjörnumenn voru nokkuð mistækir í sóknarleiknum í kvöld, brenndu af nokkrum dauðafærum eins og gerist, en misstu líka boltann frá sér. Hattarmenn stálu líka boltanum alls 12 sinnum í leiknum. Stjarnan snýr leiknum Höttur var kominn í óvenju mikla forustu, 64-59, þegar rúmar tvær mínútur voru eftir af þriðja leikhluta. Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, gerði þá ferfalda skiptingu sem virkaði því Stjarnan skoraði sex stig í röð á stuttum tíma. Höttur tók leikhlé á móti og skoraði síðustu körfuna þannig liðið var 66-65 yfir fyrir fjórða leikhluta. Þar byrjuðu Hattarmenn og virtust gera sig líklega til að landa sínum fyrsta sigri á almanaksárinu, voru 74-65 yfir þegar þrjár mínútur voru búnar, sem var mesti munur í leiknum. Þá hrökk Stjörnuliðið í gang, átti nokkrar góðar sóknir þar sem Ægir Þór Steinarsson splundraði Hattarvörninni með góðum sendingum og náði að þröngva Hetti í erfið skot sem fóru ekki ofan í. Lokafæri Hattar Höttur fékk sín færi á lokasekúndunum. Liðið náði boltanum eftir að seinna vítaskot Matej Karlovic geigaði þegar um 20 sekúndur voru eftir og hefði því getað haldið boltanum og leitað að færi því forskot Stjörnunnar var eitt stig. Gustav Suhr-Jessen fékk ágætis þriggja stiga færi úr vinstra horninu og lét vaða en hitti ekki þegar 15 sekúndur voru eftir. Stjarnan náði boltanum og Hattarmenn brutu með 11 sekúndur eftir af klukkunni. Shaquille Rombley setti bæði skotin ofan í. Höttur hafði því tækifæri á að jafna en tókst ekki að skapa almennilegt þriggja stiga skot til að jafna. Hvað gekk vel? Heilt yfir gekk leikur Hattar vel, en það vantaði herslumuninn. Stigaskorið dreifðist vel og leikmenn, sem ekki hafa átt góða leiki í vetur, lögðu sitt í leikinn. Boltinn gekk oft hratt í sókninni og vörnin var fín. Með slíkri frammistöðu hefði Höttur unnið flest lið deildarinnar. En svo sýndi Stjarnan styrk sinn í lokin. Hvað gekk illa? Það vantaði ákefð í leik Stjörnunnar frá byrjun. Þeir hleyptu Hattarmönnum tiltölulega auðveldlega á körfuna og voru síðan frekar mislagðar hendur í sókninni. En þetta slapp fyrir horn. Hverjir stóðu upp úr? Hilmar Smári Hermannsson var stigahæstur Stjörnumanna með 24 stig. Hattarmönnum gekk mjög illa að stöðva hann. Jase Febres skoraði 20. Matej Karlovic skoraði 18 stig fyrir Hött á 18 mínútum fyrir Hött. Það munar miklu fyrir liðið að hafa mann með. Justin Roberts skoraði 17. Hvað þýða úrslitin? Stjarnan og Tindastóll fylgjast áfram að í efsta sætinu, bæði lið unnu í kvöld. Höttur á aðeins tölfræðilega möguleika á að bjarga sér. Þegar fjórir leikir eru eftir er liðið átta stigum frá Keflavík, Þór Þorlákshöfn og síðan ÍR og KR sem leika á morgun. Bónus-deild karla Höttur Stjarnan
Uppgjörið: Víkingur - Panathinaikos 2-1 | Ótrúlegar senur á köldu Evrópukvöldi í Helsinki Fótbolti
Uppgjörið: Víkingur - Panathinaikos 2-1 | Ótrúlegar senur á köldu Evrópukvöldi í Helsinki Fótbolti