Íslenski boltinn

KR Reykja­víkur­meistari eftir öruggan sigur á Val

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hvítklæddir KR-ingar lögðu Val í kvöld.
Hvítklæddir KR-ingar lögðu Val í kvöld. KR

KR er Reykjavíkurmeistari karla í knattspyrnu árið 2025. KR lagði Val 3-0 í úrslitaleik sem fór í Egilshöll fyrr í kvöld.

KR-ingar urðu fyrir áfalli um miðbik fyrri hálfleiks þegar miðvörðurinn Finnur Tómas Pálmason þurfti að fara af velli vegna meiðsla. Það truflaði þó ekki meira en það að Luke Rake kom hvítum yfir á 39. mínútu og staðan 1-0 KR í vil í hálfleik.

Rae sjálfur fór reyndar sjálfur meiddur af velli áður en fyrri hálfleik lauk og Óskar Hrafn Þorvaldsson því búinn að gera tvær skiptingar áður en hans luku fyrri hálfleik. Júlíus Már Júlíusson var svo tekinn af velli í hálfleik eftir að fá höfuðhögg.

Líkt og óheppnin elti leikmenn KR þá elti boltinn netmöskva Valsmanna. Þegar tæp klukkustund var liðin tvöfaldaði Jóhannes Kristinn Bjarnason forystu KR og á 72. mínútu kláraði Matthias Præst leikinn.

Lokatölur 3-0 og KR er Reykjavíkurmeistari karla árið 2025.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×