Erlent

UNRWA hættir lík­lega allri starf­semi á Gasa og Vestur­bakkanum í dag

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Höfuðstöðvum UNRWA í Austur-Jerúsalem verður líklega lokað í dag og allri starfsemi á Gasa og Vesturbakkanum hætt.
Höfuðstöðvum UNRWA í Austur-Jerúsalem verður líklega lokað í dag og allri starfsemi á Gasa og Vesturbakkanum hætt. AP/Amr Nabil

Útlit er fyrir að Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) hætti starfsemi á Gasa og Vesturbakkanum í dag, eftir að stjórnvöld í Ísrael ákváðu að banna stofnunina innan Ísrael.

Dómstóll í landinu hefur neitað umleitan stofnunarinnar um inngrip og ógildingu laganna.

Um það bil 30 þúsund manns hafa starfað fyrir UNRWA á Gasa og Vesturbakkanum og óttast er að bannið muni koma harkalega niður bæði á íbúum og enduruppbyggingu á Gasa.

Bannið nýtur stuðnings stjórnvalda í Bandaríkjunum en Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur á síðustu dögum að minnsta kosti tvívegis lagt til að Gasa verði „tæmt“ og íbúar fluttir til Egyptalands og Jórdaníu.

Þarlend stjórnvöld hafa hins vegar ítrekað neitað að taka við flóttamönnum frá Gasa.

Ákvörðun Ísraelsmanna hefur verið fordæmd af Sameinuðu þjóðunum, mannúðarsamtökum og bandamönnum Bandaríkjanna. Antónío Guterres, framkvæmdastjóri SÞ, segir ekkert geta komið í stað UNRWA.

Stofnunin hefur til að mynda flutt inn 60 prósent allrar mataraðstoðar sem íbúar Gasa hafa fengið frá því að átök brutust út í kjölfar árása Hamas á byggðir Ísraelsmanna 7. október 2023.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×