Körfubolti

Baldur veit ekki hvort hann fái að þjálfa ÍR-liðið á­fram

Kári Mímisson skrifar
Baldur Már Stefánsson hafði verið aðstoðarþjálfari ÍR-liðsins i vetur.
Baldur Már Stefánsson hafði verið aðstoðarþjálfari ÍR-liðsins i vetur. Vísir/Anton Brink

Baldur Már Stefánsson tók við ÍR-ingum á Ísak Mána Wium eftir sex töp í röð og byrjaði frábærlega í Njarðvík í kvöld.

ÍR vann glæsilegan sigur á Njarðvík í Stapaskóla nú í kvöld. Lokatölur 96-101 og fyrsti sigur ÍR á þessu leiktímabili staðreynd. Ísak Máni Wium sem þjálfað hefur ÍR undanfarin ár sagði starfi sínu lausu í vikunni og það var því Baldur Már Stefánsson sem stýrði liðinu í kvöld en Baldur hafði áður verið aðstoðarþjálfari Ísaks.

„Fyrstu viðbrögð eru bara ægileg gleði. Þessi sigur er búinn að vera rosalega langþráður og okkur tókst loksins núna að setja saman heilsteyptan leik. Mér finnst við hafa verið góðir á köflum í vetur en ekki tekist að klára leikina eða í raun bara halda út. Okkur tókst það í kvöld og bara frábær leikur hjá strákunum,“ sagði Baldur.

ÍR-ingar byrjuðu leikinn vel en réðu ekkert við Njarðvíkinga í öðrum leikhluta sem fóru með vænt forskot þegar flautað var til hálfleiks. Spurður að því hvað hann hafi sagt við sína menn í hálfleik segir Baldur að lykilatriðið hafi einfaldlega verið að halda áfram að gera það sem liðið hafði verið að gera.

„Við vorum undir með 14 stigum í hálfleik. Það sem við gerðum var í raun bara að halda áfram því sem við vorum að gera. Okkur tókst að stjórna hraðanum og ákváðum að við ætluðum ekki að bakka og fara að spila þeirra leik. Við viljum spila hraðan bolta, héldum því bara áfram í seinni hálfleik og strákarnir vorum geggjaðir. Ég hékk með sama liðið dálítið lengi inn á og þeir sýndu allir þvílíkan karakter þessir gaurar sem voru inn á og líka þeir sem voru á bekknum,“ sagði Baldur.

Í tilkynningu sem ÍR sendi frá sér í vikunni var talað um að Baldur myndi stýra næstu leikjum en ekkert nefnt hvort hann myndi taka við liðinu til frambúðar. En mun Baldur stýra ÍR áfram?

„Það er ekkert ákveðið enn þá. Ég stíg bara inn í þennan leik og stjórnin ákveður svo framhaldið. Núna er landsleikjahlé og svo í kjölfarið tekur stjórnin væntanlega ákvörðun,“ sagði Baldur sem stjórn ÍR ætti klárlega að tala við eftir þennan glæsilega sigur í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×