Körfubolti

Popovich fékk heila­blóð­fall

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gregg Popovich er orðinn 75 ára gamall og er elsti þjálfarinn í sögu NBA.
Gregg Popovich er orðinn 75 ára gamall og er elsti þjálfarinn í sögu NBA. Getty/Maddie Malhotra

Gregg Popovich, þjálfari NBA liðsins San Antonio Spurs, fékk vægt heilablóðfall 2. nóvember síðastliðinn.

Spurs hafði sagt frá óvæntum veikindum þjálfara síns og Popovich hefur ekki þjálfað liðið undanfarnar tvær vikur.

Popovich hefur nú misst af sex leikjum en Spurs sagði frá alvarleika veikindanna í kvöld.

Popovich fékk heilablóðfall þegar hann var staddur í íþróttahöllinni.

Spurs segir að þjálfari sé í endurhæfingu og að það sé búist við því að hann nái sér að fullu. Það er aftur á móti ekki ljóst hvenær hann mun snúa aftur í þjálfarastólinn.

Popovich er sigursælasti þjálfari í sögu NBA en hann hefur unnið 1390 leiki í deildinni og 170 leiki í úrslitakeppninni. Hann hefur gert Spurs fimm sinnum að NBA meisturum.

ans 29. tímabil með liðið en Popovich er orðinn 75 ára gamall. Hann er elsti þjálfarinn í sögu NBA.

Aðstoðarmaður hans Mitch Johnson hefur stýrt liðinu í forföllum þjálfarans.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×