Dæmisaga úr raunveruleikanum Sigurður F. Sigurðarson skrifar 12. nóvember 2024 21:47 Samtök íslenskra sveitarfélaga ákváðu í sameiningu að leggja ljósleiðara um öll sveitarfélög. Ráðinn var landfræðingur sem átti að útvega landakort og landamerkingar, einnig landslagsarkitekt sem átti með aðstoð verkfræðings að teikna inn þá leið sem ljósleiðarinn átti að fara. Að lokum var ráðinn maður með skóflu sem skyldi grafa fyrir strengnum. Allir þessir aðilar áttu að fá launaþóknun þegar verkið væri búið og skrifað undir samkomulag þess eðlis. Gröfumaðurinn átti auk þess að útvega sjálfur öll verkfæri sem þyrfti en fengi þau greidd skv. sama samkomulagi að loknu verki. Allt gekk vel til að byrja með, landslagsarkitektinn og verkfræðingurinn fengu gögn frá landfræðingnum og unnu með þau og komu þeim áleiðis á gröfumanninn. Samtökin sáu að þarna var hægt að spara. Gröfumaðurinn var búinn að sjá hvernig átti að teikna þessa leið og það skipti kannski ekki alveg öllu hvernig það var gert, svo lengi sem gröfturinn hélt áfram. Ef sveitarfélögin gætu sagt upp landslagsarkitektinum og verkfræðingnum og látið landfræðingin koma gögnum til gröfumannsins þá gætu þau sparað og gröfumaðurinn aukið verðmæti sitt, án þess þó að fá einhverja umbun aðra en þá að fá fjölbreyttari verk en hann réð sig til. Þetta lætur hann þó ganga því hann vill vinna við þessa vinnu. Finnst frábært að vera úti og grafa. Hann er fljótur að átta sig á því hvernig þessi teiknivinna á sér stað og vinnur hana meðfram greftrinum. Sveitarfélögin sjá þó augljósan mun á greftrinum því hann gengur nú hægar en áður. Sveitarfélögin senda fulltrúa til að ræða við gröfumanninn. Fulltrúinn bendir gröfumanninum á að gröfturinn gangi hægar og virði gröfumannsins er ekki eins mikið og sveitarfélögin vonuðust eftir. Fulltrúinn bendir honum því á að hann geti gert annað af tvennu, grafið og teiknað hraðar þannig að þetta fari aftur að rúlla betur eða vinna lengur á kvöldin, án þess þó að fá greitt fyrir það. Gröfumaðurinn megi þó velja að gera hvoru tveggja ef það hentar honum betur. Gröfumaðurinn sér að þetta verði hann að gera og samþykkir að bæta í og / eða vinna lengur. Gengur þetta nú betur og reyndar svo vel að sveitafélögin fara að sjá fyrir sér að gröfumaðurinn geti e.t.v. líka sótt gögnin sem nú séu í höndum landfræðingsins og þannig sparað sér fjármuni þar. Þetta getur nú varla verið erfitt þar sem allt er orðið svo aðgengilegt og gröfumaðurinn hefur jú bæði kaffitíma og matartíma sem eru ónýttar auðlindir. Fulltrúi sveitarfélaganna fer aftur á fund gröfumannsins með það tilboð að hann fái fartölvu og nýti hana til að finna til landakort og landamerki og fái leyfi hjá bændum þar sem þarf að fara yfir land og fylli út alls kyns lista og samninga því tengdu. Hann fær jú tölvu í staðinn. Gröfumaðurinn biður um að fá að hitta einhvern sem er kosinn til þess að stjórna en nei, það er ekki hægt, það er bara þessi fulltrúi sem sér um að hafa samskipti við hann og kjörnir fulltrúar vilja sem minnst af þessum samningi á milli fulltrúans og gröfumannsins vita. Gröfumaðurinn hugsar málið og veit að mörg heimili reiða sig á að ljósleiðarinn komi til þeirra sem allra fyrst svo þau geti stofnað fyrirtæki á netinu og nýtt aðra kosti þess að hafa hágæða net á heimili og vinnustað. Gröfumaðurinn samþykkti enda launaþóknun um 40% í lok verksins og endurgreiðsla á öllum verkfærum. Hann sá ljósið í enda gangnanna. Heldur nú verkið áfram, gröfumaðurinn þarf að sækja gögn, vinna gögnin, gera þau klár í notkun og nýta þau svo uns verkinu lýkur. Gengur þá gröfumaður á fund fulltrúa sveitarfélaganna, sveittur en nokkuð kátur enda komið að uppgjöri á gerðu samkomulagi. Fulltrúinn heldur nú ekki, hann var ekki kominn til starfa þegar þetta samkomulag var gert, jafnvel þó svo að þeir sem gerðu hann væru enn í starfi hjá samtökum sveitarfélaga. Hann gæti því ómögulega uppfyllt þetta ósanngjarna samkomulag. Það væri ekki hægt að greiða alla þessa upphæð því þá færu aðrir að heimta að samningar væru uppfylltir. Það væri bara alls ekki á færi þeirra sem væru kosnir að standa við það sem þeir segðu eða skrifuðu undir, þeir sem færu fram á slíkt væru bara frekir til fjársins og ómögulegt. Auk þess hefði virði gröfumannsins minnkað töluvert þegar hann var farinn að vinna við ýmislegt annað en að grafa, hann var farinn að vinna sem landfræðingur, verkfræðingur og landslagsarkitekt. Þarna erum við kennarar í dag. Við erum félagsfræðingar, sálfræðingar, mannfræðingar og kennarar. Það er búið að demba svo miklum aukaverkefnum á okkur að stjórnmálamenn halda að við stöndum ekki lengur pliktina sem kennarar. En við erum fyrst og fremst kennarar, sérfræðingar í kennslufræðum. Við viljum fá greitt sem slíkir. Við viljum að þeir sem voru svo góðir að taka af okkur lífeyrisréttindi árið 2016 standi við seinni hluta samkomulagsins sem var að jafna laun kennara, sérfræðinga í kennslufræðum, við sérfræðinga á almennum markaði. Við viljum ekki nýjan kjarasamning. Við viljum fá gamalt samkomulag, átta ára gamalt samkomulag, uppfyllt. Við viljum svo gjarnan fara aftur að grafa eða kenna. Við vijum fá aðra fræðinga til að semja kennsluefni svo við getum snúið okkur enn frekar að kennslunni. Við viljum enn frekari stuðning inn í skólana svo sálfræðingar og félagsfræðingar og iðjuþjálfar sjái um þau mál en við getum staðið í kennslustofunni og gert það sem við gerum best – að kenna. Þegar búið er að uppfylla samkomulagið frá 2016 þá skulum við ræða nýjan kjarasamning. Þá má bjóða okkur sömu hækkanir og hafa verið í gangi. En ekki fyrr en þá. Höfundur er kennari við Brekkuskóla á Akureyri og í stjórn og samninganefnd FG. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveitarstjórnarmál Kennaraverkfall 2024 Skóla- og menntamál Mest lesið Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Saga frá Svíþjóð - Lífskjör mælast ekki í vaxtaprósentum Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Ekki nóg að telja milljarðana: Árangur verður að mælast Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ljósmyndarinn á öld gervigreindar Kristján Logason skrifar Skoðun Þegar skattfé velur búsetu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Afmarkað vald er ekki endilega lítið vald Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Suðurland í sókn en Vegagerðin sker niður landsbyggðarstrætó skrifar Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Ólafur Ragnar Grímsson og Cherry-picking Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Pílagrímaganga fyrir líkama og sál Sr. Arna Grétarsdóttir skrifar Skoðun Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir skrifar Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson skrifar Skoðun Kveðum niður gyðingahatur Guðmundur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Tæknin kemur hratt - en ávinningurinn ekki sjálfkrafa Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Óafsakanlegt, en ekki óleysanlegt Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun FIFA skapar nýja skúrka Bragi V. Bergmann skrifar Skoðun Vangaveltur Hörður Torfason skrifar Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Temu-pakkar JP Zimsen eða alvöru hagsmunir Íslands Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Bless tollfrjálsu Temu, Shein og Alibaba Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Þjóðarsjóðurinn okkar heitir Landsvirkjun. Erum við að ávaxta hann? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnir og fjölmiðlar Evrópu – sameinaðir í stuðningi við þjóðarmorð Hlynur Már Ragnheiðarson skrifar
Skoðun Hatursorðræða á ekki heima í íþrótta- og æskulýðsstarfi Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir,Eygló Ósk Gústafsdóttir skrifar
Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson skrifar
Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson skrifar
Skoðun Hvalfjarðarsveit kallar eftir samtali við Vegagerðina um umferðaröryggi Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar
Skoðun Þegar stórveldin gera það sem þeim sýnist er ESB okkar besti kostur Eiríkur Ragnarsson skrifar
Skoðun Nærri þrír vinnumánuðir á ári – hinn ósýnilegi kostnaður endómetríósu Jón Ívar Einarsson skrifar
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun