Skoðun

Há­skóli Ís­lands styður þjóðar­morð

Elí Hörpu og Önundarbur skrifar

Það er orðið ljóst: Rektor Háskóla Íslands styður þjóðarmorð.

Þjóðarmorð er ekki nógu alvarlegt í augum rektors Háskóla Íslands til þess að hann telji ástæðu til að tjá sig opinberlega. Þjóðarmorð er ekki nægileg ástæða til þess að rektor lýsi yfir stuðningi við palestínskan almenning á Gaza sem hafa nú í 377 daga verið sprengd í loft upp, skotin til bana af leyniskyttum, pyntuð til dauða í fangabúðum, brennd lifandi í tjaldbúðum og svelt vísvitandi í hel.

Kerfisbundið þjóðarmorð framkvæmt með vopnum vestrænna ríkja kemur Háskóla Íslands hreinlega ekki við, samkvæmt rektor. Nei, það er einfaldlega ekki nógu mikið einsdæmi til þess að rektor finnist viðeigandi að Háskóli Íslands tjái sig um málið. Hvað þá að slíta opinberlega öllum tengslum við gerandann í þjóðarmorðinu. Nei, slíkt gengi í berhöggi við akademískt frelsi og gildi háskólasamfélagsins, vill rektor meina.

Þá spurðu nemendur: hvað með alla háskólana, söfnin og fræðasetrin sem Ísrael hefur sprengt í loft upp? Alla nemendurna sem hafa verið myrtir, eins og hinn 19 ára verkfræðinema Shaban al-Dalou, sem allur heimurinn sá brenna lifandi ásamt móður sinni í tjaldbúðum eftir sprengjuárás Ísraels á Al-Aqsa spítalann? Þegar eldurinn gleypti hann lá hann á sjúkrabeði með vökva í æð að jafna sig eftir aðra sprengjuárás Ísraels sem hafði verið gerð á mosku. Hvað með allt fræðafólkið og háskólakennarana sem hafa verið myrt eða fangelsuð af Ísrael, líkt og prófessor Nadera Shalhoub-Kevorkian? Eru þau einnig óviðkomandi Háskóla Íslands og háskólasamfélaginu? Miðað við þögn rektors gagnvart þessum spurningum, og hvað þögn hans hefur varað lengi, er ljóst að hann, og þar með Háskóli Íslands, styður þjóðar- og menntamorð. Hvað annað getur þögnin þýtt?

Nú gæti einhverjum fundist óréttlátt að leggja þetta á herðar rektors, en samkvæmt reglum Háskólans er rektor „forseti háskólaráðs, yfirmaður stjórnsýslu háskólans og æðsti fulltrúi hans gagnvart mönnum og stofnunum innan skólans og utan. Hann hefur frumkvæði að því að háskólaráð marki heildarstefnu í málefnum háskólans. Rektor ber ábyrgð á og hefur eftirlit með allri starfsemi skólans og á milli funda háskólaráðs fer hann með ákvörðunarvald í öllum málum háskólans.“

Reyndar mega öll sem eiga sæti í Háskólaráði, nema fulltrúar stúdenta, sitja undir sömu skömm og rektor, en þjóðarmorðið á Gaza hefur einungis verið rætt þar einu sinni og það af frumkvæði stúdenta. Það var þá sem rektor sem lýsti landráni, þjóðarmorði og stríðsglæpum Ísraels sem „pólitísku álitamáli líðandi stundar.“ Þögnin frá öllum æðstu embættum Háskóla Íslands, þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir bæði starfsfólks og nemenda, er ærandi.

Þetta er ein af þeim stundum í mannkynssögunni sem við verðum öll að gera allt sem í okkar valdi stendur til að stöðva þjóðarmorðið. Háskólasamfélagið getur ekki setið hjá, og tekist á við hryllinginn áratugum síðar í baksýnisspeglinum.

Þar til sýnt hefur verið fram á annað neyðumst við því til þess að áætla að Háskóli Íslands, æðsta menntastofnun landsins, styðji þjóðarmorð.

Elí Hörpu og Önundarbur,  meistaranemi í tómstunda- og félagsmálafræði og meðlimur í Stúdentar fyrir Palestínu.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×