Umfangsmikil árás á Gasa talin hafa banað minnst 71 Jón Ísak Ragnarsson skrifar 13. júlí 2024 14:07 Al Mawasi svæðið er í miklum rústum eftir árásina. EPA Heilbrigðisyfirvöld á Gasa, sem rekin eru af Hamas segja að minnst 71 hafi verið drepinn í umfangsmikilli árás Ísraelshers á svæði sem átti að vera öruggt mannúðarsvæði. Ísraelsher segir að skotmörk árásarinnar hafi verið háttsettir leiðtogar Hamas.
Hamas segir að árásin hafi verið gerð að al-Mawasi svæðinu nálægt Khan Younis, sem Ísraelsher hafði markað sem öruggt svæði, og hvatt Palestínumenn til að leita þar skjóls. Heilbrigðisyfirvöld segja að minnsta kosti 289 hafi hlotið áverka. Talsmaður Ísraels segir að árásin hafi beinst að höfuðpaur hernaðardeildar Hamas, Mohammed Deif, og Rafa Salama, forsprakka Hamas í Khan Younis. Árásin hafi verið að opnu svæði þar sem eingöngu væru vígamenn Hamas og engir óbreyttir borgarar. Mohammed Dief er talinn hafa verið einn helsti maðurinn á bak við hryðjuverkin í Ísrael þann 7. október síðastliðinn. Hann hefur verið lengi verið efstur á lista eftirlýstra hjá Ísrael, en hann er talinn hafa sloppið undan ótalmörgum morðtilraunum Ísraelshers. Staðan á Nasser spítalanum í dag.EPA Ekki liggur fyrir hvort hann hafi verið drepinn, en forsvarsmenn Ísraelshers segja að enn sé verið að skoða árangur árásarinnar. Hamas hafa andmælt því að árásinni hafi verið beint að leiðtogum þeirra. „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ísrael segir að takmarkið hafi verið vígamenn, sem reynist svo vera haugalygi,“ segir í tilkynningu Hamas. Mohammed Abu Rayya, læknir á svæðinu, segir við BBC að dagurinn sé „einn af þessum svörtu dögum.“ Hann segir að flestir sem komi á spítalann séu þegar látnir, en aðrir hafi mikla áverka. Mörg fórnarlambanna séu óbreyttir borgarar, mörg börn og konur séu á spítalanum.
Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Ísrael Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Sjá meira