Gera má ráð fyrir að verði þurrt að kalla sunnanland, en auk þess er víða reiknað með norðvestan hvassviðri eða stormi. Það verður þó heldur hægari vindur á vesturhelmingi landsins.
Á vef Veðurstofunnar segir að gefnar hafi verið út viðvaranir og bent á að þeir sem eigi eitthvað undir veðri séu hvattir til að kynna sér þær og fylgjast vel með veðurspám og veðurathugunum. Viðvaranirnar eru ýmist gular eða appelsínugular og gilda margar til morguns.

Hiti verður á bilinu núll til fjögur stig á Norður- og Austurlandi í dag, en að ellefu stigum sunnan- og vestantil.
Það dregur svo smám saman úr vindi og úrkomu á morgun en þá hvessir aftur og bætir í ofankomu á norðvestanverðu landinu. Dálítil rigning sunnanlands um kvöldið.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á fimmtudag: Minnkandi norðvestanátt, 10-18 m/s síðdegis, hvassast norðvestantil. Slydda, rigning eða snjókoma á norðanverðu landinu. Þurrt að kalla sunnantil en rigning eða slydda með köflum suðvestanlands seinnipartinn. Hiti 2 til 10 stig, mildast á Suðausturlandi.
Á föstudag: Norðan 8-15 og skúrir eða él, en þurrt að kalla sunnan heiða. Hiti 3 til 12 stig, mildast syðst
Á laugardag: Norðvestan 8-15 og skýjað. Rigning eða slydda með köflum, en lengst af þurrt sunnan- og vestanlands. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag: Fremur hæg breytileg átt og bjart með köflum. Hiti 9 til 15 stig, en heldur svalara norðaustantil. Fer að rigna á vestanverðu landinu um kvöldið.
Á mánudag: Vestlæg átt og rigning með köflum en styttir upp austanlands síðdegis. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast á Austur- og Suðausturlandi.
Á þriðjudag: Breytileg átt og yfirleitt bjartviðri en líkur á þokulofti við ströndina. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast sunnan- og vestantil.