Kalt loft, stormur, úrkoma, rigning, slydda og snjókoma á landinu Atli Ísleifsson skrifar 5. júní 2024 07:15 Hiti verður á bilinu núll til fjögur stig á Norður- og Austurlandi í dag, en að ellefu stigum sunnan- og vestantil. Vísir/Vilhelm Víðáttumikil lægð er nú stödd austur af landinu og beinir hún köldu lofti úr norðri til landsins og fylgir talsverð úrkoma, rigning eða slydda við sjávarmál og snjókoma inn til landsins á Norður- og Austurlandi.
Gera má ráð fyrir að verði þurrt að kalla sunnanland, en auk þess er víða reiknað með norðvestan hvassviðri eða stormi. Það verður þó heldur hægari vindur á vesturhelmingi landsins. Á vef Veðurstofunnar segir að gefnar hafi verið út viðvaranir og bent á að þeir sem eigi eitthvað undir veðri séu hvattir til að kynna sér þær og fylgjast vel með veðurspám og veðurathugunum. Viðvaranirnar eru ýmist gular eða appelsínugular og gilda margar til morguns. Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi víða um land vegna hvassviðris og hríðarveðurs.Veðurstofan Hiti verður á bilinu núll til fjögur stig á Norður- og Austurlandi í dag, en að ellefu stigum sunnan- og vestantil. Það dregur svo smám saman úr vindi og úrkomu á morgun en þá hvessir aftur og bætir í ofankomu á norðvestanverðu landinu. Dálítil rigning sunnanlands um kvöldið. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Minnkandi norðvestanátt, 10-18 m/s síðdegis, hvassast norðvestantil. Slydda, rigning eða snjókoma á norðanverðu landinu. Þurrt að kalla sunnantil en rigning eða slydda með köflum suðvestanlands seinnipartinn. Hiti 2 til 10 stig, mildast á Suðausturlandi. Á föstudag: Norðan 8-15 og skúrir eða él, en þurrt að kalla sunnan heiða. Hiti 3 til 12 stig, mildast syðst Á laugardag: Norðvestan 8-15 og skýjað. Rigning eða slydda með köflum, en lengst af þurrt sunnan- og vestanlands. Hiti breytist lítið. Á sunnudag: Fremur hæg breytileg átt og bjart með köflum. Hiti 9 til 15 stig, en heldur svalara norðaustantil. Fer að rigna á vestanverðu landinu um kvöldið. Á mánudag: Vestlæg átt og rigning með köflum en styttir upp austanlands síðdegis. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast á Austur- og Suðausturlandi. Á þriðjudag: Breytileg átt og yfirleitt bjartviðri en líkur á þokulofti við ströndina. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast sunnan- og vestantil.
Veður Mest lesið Prestur í Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Innlent Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Innlent Gekk berserksgang og beraði sig Innlent „Af hverju ertu svona í framan?“ Innlent Stjórnarformaður RÚV vill að Ísrael verði tafarlaust vikið úr Eurovision Innlent Segja stutt í samkomulag en sprengjum rignir enn Erlent Sendir þjóðvarðliðið til Chicago Erlent Var að streyma á TikTok þegar hann féll til jarðar og lést Erlent Eldur í þvottahúsi á Granda Innlent Fjöldi án rafmagns vegna vonskuveðurs í Noregi Erlent Fleiri fréttir Sleppum ekki alveg við leiðindi Gular viðvaranir og allt að 45 metrar á sekúndu í hviðum Hægviðri og víða bjart Skúrir og áfram milt í veðri Suðlægar áttir og úrkoma í flestum landshlutum Sunnan strekkingur og vætusamt Allhvass vindur sunnan- og vestanlands og rigning Fyrsta haustlægðin mætt til landsins Von á mesta vindinum í marga mánuði Búast við auknu álagi á fráveitu vegna mikillar úrkomu Röð lægða með hefðbundnu haustveðri Lægðagangur næstu daga býður upp á sígilt haustveður Strekkingsvindur og fremur vætusamt næstu daga Vaxandi vindur þegar líður á daginn Grunn lægð yfir landinu í dag en suðlægir vindar á morgun Víða kaldi og allhvasst en lægir smám saman í dag Gular viðvaranir og svalri norðanátt beint til landsins Slydduél norðantil en þurrt og bjart sunnan heiða Kólnar í kvöld og allvíða næturfrost Kólnar þegar líður á vikuna Milt veður og víða væta Rigning með köflum víðast hvar Blautt víðast hvar Dálítil rigning og lægðir á sveimi Væta með köflum og dregur úr vindi Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Hvasst og samfelld rigning austast Má reikna með vatnavöxtum suðaustantil Rigning í dag Víðast hægur vindur og hiti að fimmtán stigum Sjá meira