Þingfundur átti að hefjast klukkan þrjú í dag. Þingflokksformenn stjórnarandstöðuflokkanna gerðu hins vegar athugasemdir við að halda ætti þingfund með fjölmörgum stjórnarfrumvörpum á dagskrá sem ráðherrar í starfsstjórn ættu að mæla fyrir.

Birgir Ármannsson forseti Alþingis fundaði tvívegis með þingflokksformönnum áður en hann setti þingfund þar sem hann las upp nokkrar tilkynningar. Þeirra á meðal bréf frá Katrínu Jakobsdóttur starfandi forsætisráðherra þar sem hún sagði af sér þingmennsku.
„Með þessu bréfi segi ég af mér þingmennsku í ljósi þess að ég hef nú boðið mig fram til embættis forseta Íslands. Ég þakka forseta þingsins, þingmönnum og öllu starfsfólki þingsins gott samstarf undanfarin sautján ár og óska ykkur öllum velfarnaðar í ykkar mikilvægu störfum,“ sagði meðal annars í bréfinu.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingflokksformaður Pírata segir eðlilegt að þingfundi hafi verið frestað.
„Þetta var mjög óraunhæf dagsrá miðað við að þarna voru mörg mál frá þeim sem eiga að heita að sitja á fundum meira og minna í allan dag til að reyna að klístra saman þessari mögulegu áframhaldandi ríkisstjórn. Okkur fannst ekki við hæfi, án þess að vita hvort það sé starfshæfur meirihluti í landinu, að ræða gommu af stjórnarmálum sem ekki liggur fyrir hvort standi til að klára eða ekki,“ sagði Þórhildur Sunna að loknum stuttum þingfundi.

Logi Einarsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar tekur í sama streng.
„Í fyrsta lagi vorum við búin að gera athugasemdir við að starfsstjórnin væri að leggja fram þrettán stjórnarmál. Á hinn bóginn held ég að það sé að draga til tíðinda. Það eru ýmsir sem ganga hér um húsið frekar tindilfættir og aðrir þungstígari. Þannig að ég held að þau séu búin að sjá til lands í þessu,“ sagði Logi.
Margir sem fréttastofa ræddi við í dag segja orkumálin og útlendingamálin verða erfiðust í forgangsröðun flokkanna til þeirra átján mánaða sem eftir eru af kjörtímabilinu.
Sömu mál og áður að þvælast fyrir stjórnarflokkunum

„Mér finnst líka mjög áhugavert að Sjálfstæðisflokkurinn hefur talað um að það þurfi að ná einhverri lendingu í útlendingamálum. Vegna þess að þau eru nýbúin að halda blaðamannafund ráðherrar VG og Sjálfstæðisflokksins um að það sé komin einhver skýr stefna og sýn í útlendingamálum og hælisleitendamálum. Þannig að þau eru bara að vandræðast sýnist mér með nákvæmlega sömu málaflokka og við höfum séð vandræði hjá þeim með allt kjörtímabilið,“ segir Sigmaður Guðmundsson þingflokksformaður Viðreisnar.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir augljóst að forystufólk stjórnarflokkanna hafi ekki enn náð samkomulagi.

Getur Alþingi starfað á meðan starfsstjórnin situr?
„Það er afskaplega góð spurning miðað við daginn í dag. Hvað getur Alþingi gert við þessar aðstæður. Svo þetta verður að fara að klárast eins og margir menn hafa bent á. „senn klárast þetta“ var sagt. Senn er greinilega teygjanlegt hugtak en það eru takmörk fyrir því líka hversu teygjanlegt það má vera,“ segir formaður Miðflokksins.
Þá lagði Inga Sæland formaður Flokks fólksins fram nýja vantrauststillögu á matvælaráðherra á Alþingi í dag vegna álits umboðsmanns Alþingis á tímabundnu banni ráðherrans á hvalveiðum í fyrra
„Alvarleikinn er mikill hvað lýtur að hennar embættisverkum og ástæða til að fylgja því eftir. Því það er okkar kjörinna fulltrúa að sjá til þess að framkvæmdavaldið fari ekki algerlega offari og yfir sig í sínum störfum,“ sagði Inga Sæland í dag.