Viðskipti innlent

Tengi­far­þegar geta nú sjálfir bókað ferð með stuttri við­dvöl á Ís­landi

Atli Ísleifsson skrifar
Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir það mikinn áfanga fyrir félagið að nú geti tengifarþegar sjálfir bókað sér „stopover“ á Íslandi í bókunarvél.
Birgir Jónsson, forstjóri Play, segir það mikinn áfanga fyrir félagið að nú geti tengifarþegar sjálfir bókað sér „stopover“ á Íslandi í bókunarvél. Vísir/Vilhelm

Flugfélagið Play býður nú tengifarþegum sínum að bóka sjálfir dvöl á Íslandi án aukakostnaðar þegar þeir fljúga á milli Norður Ameríku og Evrópu. Með nýju viðmóti á vef flugfélagsins geta farþegarnir sjálfir klárað slíka bókun og þar með dvalið á Íslandi í allt að tíu daga áður en þeir halda för sinni áfram yfir Atlantshafið.

Icelandair hefur lengi boðið tengifarþegum upp á slíka viðdvöl á Íslandi, eða það sem hefur kallast „stopover“ á ensku.

Í tilkynningu frá Play segir að félagið leggi mikið upp úr því að bjóða samkeppnishæf verð á sínum mörkuðum og með þessari þjónustu séu ferðamenn að fá að heimsækja tvö lönd án þess að greiða aukalega fyrir það í bókunarvél flugfélagsins.

„Í Bandaríkjunum flýgur Play til Baltimore, Boston, New York og Washington DC en flugfélagið býður einnig upp á áætlunarferðir til Toronto í Kanada. Í Evrópu er flugfélagið með yfir 30 áfangastaði, þar á meðal gífurlega vinsæla borgaráfangastaði á borð við Kaupmannahöfn, London, París, Berlín og Amsterdam. Þar að auki býður Play upp á fjölda sólarlandaáfangastaða í Evrópu á borð við Alicante, Mallorca, Fuerteventura, Aþenu, Lissabon og nú nýjast, Split í Króatíu,“ segir í tilkynningunni.

Þar er líka haft eftir Birgi Jónssyni, forstjóra Play, að það sé gríðarlegur áfangi fyrir félagið að nú geti tengifarþegar sjálfir bókað sér „stopover“ á Íslandi í bókunarvél Play sér að kostnaðarlausu. 

„Þetta eykur vöruúrvalið okkar og mun reynast okkur afar dýrmætt tól í samkeppni um verðmæta farþega á okkar mörkuðum. Það er ótvírætt hagræði fyrir farþega að velja Play ef þeir vilja komast yfir Atlantshafið og laðast um leið að því mikla aðdráttarafli sem Ísland hefur. Þessi nýja þjónusta á vef okkar auðveldar þeim ferlið til muna að bóka áningu á okkar fallega landi og mun auka hróður okkar flugfélagsins enn frekar á erlendri grundu,“ segir Birgir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×