Wolfgang Schäuble látinn Atli Ísleifsson skrifar 27. desember 2023 08:56 Wolfgang Schäuble lét af embætti fjármálaráðherra Þýskalands árið 2017 eftir að hafa gegnt embættinu frá árinu 2009. EPA Wolfgang Schäuble, fyrrverandi fjármálaráðherra Þýskalands, er látinn, 81 árs að aldri. Hann var fjármálaráðherra í ríkisstjórn Angelu Merkel kanslara á tímum skuldakreppunnar á evrusvæðinu.
Þýska fréttastofan DPA segir hann hafa andast í faðmi fjölskyldu sinnar í gærkvöldi. Schäuble, sem fæddur var 1942 og lögfræðingur að mennt, var um árabil einn af leiðtogum Kristilegra demókrata í Þýskalandi. Hann var kjörinn á þing árið 1972 og átti þar sæti allt til dauðadags. Hann tók við formennsku í flokki Kristilegra demókrata af Helmut Kohl árið 1998 og gegndi embættinu til 2000 þegar Angela Merkel tók við. Merkel gerði Schäuble að fjármálaráðherra árið 2009 og varð hann þekktur fyrir harða afstöðu sína þegar kom að skuldakreppunni þar sem hann talaði fyrir ströngum aðhaldsaðgerðum og því að takmarka lánveitingar til aðildarríkja Evrópusambandsins í suðurhluta álfunnar, meðal annars Grikklands, Ítalíu og Spánar. Hann lét af embætti fjármálaráðherra Þýskalands árið 2017 og tók þá við embætti forseta þingsins. Hann lét af því embætti árið 2021. Á árum áður hafði hann meðal annars gegnt embætti innanríkisráðherra. Árið 1990 komst hann lífs af eftir að honum var sýnt banatilræði og var hann bundinn við hjólastól það sem hann átti eftir ólifað.
Andlát Þýskaland Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira