Fótbolti

Evrópumeistararnir að krækja í sau­tján ára Argentínumann

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Claudio Echeverri er við það að ganga í raðir Manchester City.
Claudio Echeverri er við það að ganga í raðir Manchester City. Vísir/Getty

Englands- og Evrópumeistarar Manchester City eru við það að ganga frá samningum við hinn sautján ára gamla Claudio Echeverri frá River Plate.

Forráðamenn liðanna funduðu í gær um kaupin á þessum efnilega sóknarsinnaða miðjumanni sem hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið fjóra deildarleiki fyrir aðallið River Plate og lagt upp í þeim eitt mark.

Þá hefur Echeverri verið algjör lykilmaður í U17 ára landsliði Argentínu þar sem hann hefur skorað þrettán mörk og lagt upp önnur fimm fyrir liðsfélaga sína í 22 leikjum.

Echeverri hefur verið undir smásjánni hjá fleiri liðum á Englandi, en nú virðast Englandsmeistararnir í Manchester City vera við það að semja við leikmanninn. 

Aðdáendur ensku úrvalsdeildarinnar munu þó að öllum líkindum þurfa að bíða þolinmóðir eftir því að sjá hann leika í deildinni þar sem líklegt þykir að hann muni áfram spila hjá River Plate á láni frá Manchester City.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×