Viðskipti innlent

Kaupin frábær tíðindi fyrir þá sem tilheyra félaginu

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Bjarni Þór Þórólfsson er framkvæmdastjóri Búseta og Egill Lúðvíksson er framkvæmdastjóri Heimstaden.
Bjarni Þór Þórólfsson er framkvæmdastjóri Búseta og Egill Lúðvíksson er framkvæmdastjóri Heimstaden. AÐSENT

Leigufélag Búseta hefur fest kaup á 42 íbúðum leigufélagsins Heimstaden. Auk þess hafa félögin tvö undirritað viljayfirlýsingu um kaup á 90 íbúðum til viðbótar.

Íbúðirnar sem um ræðir eru við Tangarbryggju í Reykjavík en viljayfirlýsingin um frekari kaup nær einnig til íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Bjarni Þór Þórólfsson er framkvæmdastjóri Búseta.

„Það liggur fyrir að Heimstaden hefur ákveðið að draga úr umsvifum sínum á Íslandi, þá er mikilvægt að þessar íbúðir með þessum íbúum rati í hendur og verði í umsjón félags eins og Búseta, þar sem vel er haldið utan um leigjendur.“ segir Bjarni Þór í samtali við fréttastofu. 

Greint var frá því fyrr á þessu ári að leigufélagið Heimstaden sem á um 1700 íbúðir á Íslandi ætli sér að selja þær. Ástæðan er sú að viðræður við lífeyrissjóði um kaup á hlut í félaginu báru ekki árangu og töldu forsvarsmenn þar með rekstrarforsendur brostnar. 

Bjarni Þór hjá Búseta segir kaupin frábær tíðindi fyrir þá sem tilheyra félaginu.

„Búseti er í grunninn húsnæðissamvinnufélag sem hefur að geyma sirka 1300 íbúðir í samstæðu sinni. Búseti er líka með dótturfélag með á þriðja hundrað íbúða sem við höfum verið að fjölga í undanfarið.“

Í tilkynningu frá félögunum tekur Egill Lúðvíksson í sama streng og Bjarni Þór.

„Það er ánægjulegt að geta tryggt leigutökum okkar áframhaldandi húsnæðisöryggi hjá nýjum eiganda. Þetta eru íbúðir á mjög góðum og eftirsóttum stað á höfuðborgarsvæðinu. Búseti er rótgróinn aðili á húsnæðismarkaði og gildi félagsins fara vel saman við okkar. Ég trúi að leigutakar okkar verði ánægðir með þessi viðskipti,“ er haft eftir Agli.

Bjarni Þór segir að frekari kaup á íbúðum séu í skoðun og líklegt að það verði af þeim kaupum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×