Fótbolti

Daníel Leó kom inn af bekknum í tapi

Smári Jökull Jónsson skrifar
Daníel Leó hefur verið í landsliðshópi Íslands í undanförnum verkefnum liðsins.
Daníel Leó hefur verið í landsliðshópi Íslands í undanförnum verkefnum liðsins. Vísir/Vilhelm

Daníel Leó Grétarsson og félagar í Slask Wroclaw biðu í dag lægri hlut á heimavelli gegn Piast Gliwice í pólsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Daníel Leó hóf leikinn á varamannabekk Slask í dag en liðið var í 12. sæti pólsku deildarinnar fyrir leikinn, aðeins þremur stigum fyrir ofan fallsæti. Gestirnir í Piast Gliwice voru tveimur stigum ofar og því um mikilvægan leik að ræða.

Leikurinn í dag var markalaus lengi vel. Á 82. mínútu skoraði hins vegar Jorge Felix eina mark leiksins fyrir gestina í Piast Gliwice og tryggði þeim mikilvægan sigur.

Daníel Leó Grétarsson kom inn af bekknum á 73. mínútu hjá Slask sem er í harðri fallbaráttu þegar sjö umferðir eru eftir af pólsku deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×