Baldur um Val: „Á enn eftir að sjá þá verða í baráttunni um titilinn“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. apríl 2023 10:30 Valur vann Lengjubikarinn og fékk aðeins eitt mark á sig í honum. Það kom úr vítaspyrnu. vísir/diego Baldur Sigurðsson balla. Liðinu er spáð 2. sæti Bestu deildar karla í spá íþróttadeildar Vísis og Stöðvar 2 Sports. „
Þetta hefur litið mjög vel út hjá Val og það sem ég held að hafi hjálpað þeim í vetur er að á einhvern undarlegan hátt hafa þeir siglt undir radarinn. Þeir hafa bara fengið að vinna í sínu. Það er ekki þessi endalausa umræða um að þeir séu atvinnumannafélag og hvað þeir séu að gera og hvaða leikmenn þeir eru búnir að fá inn. Ég held að þetta sé mjög jákvætt fyrir Val hvernig þetta hefur verið og hvernig þeir hafa spilað í Lengjubikarnum og á undirbúningstímabilinu,“ sagði Baldur sem er einn sérfræðinga Stöðvar 2 Sports um Bestu deildina. „Það er ekki hægt að segja annað en þetta líti vel út. Þú færð ekki á þig mark og frammistaðan hefur verið gríðarlega öflug.“ Baldur er ekki á því að Valsmenn eigi eitthvað inni, til dæmis þegar kemur að sóknarleiknum. „Ég er ekki viss um að þeir eigi mikið inni. Núna virðast þeir vera í þannig formi að þeir loka bara vörninni og hafa trú á því að þeir fái ekki á sig mark. Við þurfum aðeins að sjá hvað gerist þegar við förum inn í mótið. Þetta er breytt lið,“ sagði Baldur. „Ég á enn eftir að sjá þá verða í baráttunni um titilinn en þeir verða klárlega í baráttunni um Evrópusæti. Þetta verður ágætis fyrsta ár hjá Arnari [Grétarssyni] en ég hef ekki trú á að þeir standist kröfurnar sem eru gerðar til Vals.“ Fyrsti leikur Vals í Bestu deildinni er gegn ÍBV mánudaginn 10. apríl.
Besta deild karla Valur Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira