Þyrlan kölluð út í þriðja sinn: „Þetta eru óvenjumörg slys“ Ólafur Björn Sverrisson skrifar 25. mars 2023 17:08 Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur haft í nógu að snúast í dag. vísir/vilhelm Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út í þriðja sinn í dag vegna vélsleðaslyss sem varð á Gimbrahnjúk, vestan við Dalvík um hálf fimmleytið í dag. Um er að ræða þriðja útkall þyrlunnar í dag sem telst óvenjumikið.
Þyrlusveitin var fyrr í dag kölluð út vegna vélsleðaslyss á Jarlhettum, suður af Langjökli. Sjá einnig: Þyrlan aftur kölluð til vegna vélséðaslyss á Langjökli Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir að þyrlan muni lenda í Reykjavík á næstu mínútum vegna slyssins á Langjökli. „Það verður væntanlega sama áhöfn sem fer norður,“ segir Ásgeir. Á Dalvík er um að ræða annað vélsleðaslys. „Ástæða þess að þyrlan er kölluð til er staðsetning slyssins,“ segir Ásgeir jafnframt. Eru þetta ekki óvenjumörg slys í dag? „Jú, það hafa sömuleiðis komið upp tvö önnur slys sem við erum ekki með nákvæma staðsetningu á en björgunarsveitir hafa sinnt og ekki krafist aðstoðar Landhelgisgæslu. Þrjú þyrluútköll sama daginn er mjög mikið en það gerist oft þegar það er gott veður og margir á ferli. Þá er líklegra að það verði slys.“ Í morgun varð síðan alvarlegt fjórhjólaslys við Hlöðuvallaveg undir Langjökli. Einn var þá fluttur slasaður með þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Landhelgisgæslan Dalvíkurbyggð Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Fleiri fréttir Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira