Fljótel meðal sýnisgripa á ferðaþjónustuhátíð Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Viktor Örn Ásgeirsson skrifa 27. janúar 2023 20:38 Lilja Alfreðsdóttir ráðherra og Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair mættu að sjálfsögðu á ráðstefnuna. Vísir/Egill/Arnar Mid-Atlantic kaupstefnan fór fram í Laugardalshöll í dag, í fyrsta sinn í þrjú ár. Kaupstefnugestir segja mikinn vöxt hafa orðið í íslenskri ferðaþjónustu síðan ráðstefnan fór síðast fram og nauðsynlegt að mynda tengsl bæði vestan og austan Atlantshafs.
Icelandair hefur haldið Mid-Atlantic kaupstefnuna í þrjá áratugi. Fólki og fyrirtækjum frá bæði Evrópu og Ameríku er boðið að kaupa og selja vöru sína. Mikill vöxtur hefur orðið í geiranum hérlendis síðan ráðstefnan fór síðast fram fyrir þremur árum en jafnframt er von á miklum fjölda ferðamanna hingað til lands á árinu. Eftir djúpa Covid-lægð spáir ferðamálastofa því að 2,3 milljónir erlendra ferðamanna ferðist til Íslands á árinu, sem er svipað og árið 2018, þegar mest var. „Það er mikill áhugi á því að koma til Íslands og það er auðvitað mjög jákvætt fyrir hagkerfið okkar og allar þær fjárfestingar sem hafa átt sér stað í ferðaþjónustunni,“ segir Lilja alfreðsdóttir ferðamálaráðherra sem var stödd á ráðstefnunni. Fréttastofa Stöðvar 2 ræddi við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í kvöldfréttum. Bogi er bjartsýnn og segir útlitið gott. „Það sem við erum að sjá samkvæmt könnunum og fleiru er að fólk er að forgangsraða ferðalögum og upplifunum ofar heldur en áður. Fólk vill hitta vini og ættingja og vill ekki sitja fast einhvers staðar, sitja fast heima hjá sér. Þannig að eftirspurnin á okkar mörkuðum er mjög sterk í dag, sem er mjög ánægjulegt.“ Hann segir áherslur í ferðaþjónustu ekki hafa breyst mikið eftir faraldurinn. Einhverjar áhyggjur höfðu grafið um sig, um hvort fólk yrði hrætt við að sitja lengi í flugvélum eða forðast sams konar nánd við ókunnuga. Áhyggjurnar voru óþarfar að hans sögn. „Við erum með metnaðarfulla áætlun í sölu fyrir árið, sumarið, og erum að bæta við áfagnastöðum og bókunarflæðið er sterkt. Þannig að útlitið er mjög gott fyrir ísland sem áfangastað fyrir ferðamenn.“ Líta til Íslands sem fordæmis Íslensk ferðaþjónustufyrirtæki líta árið björtum augum. „Þetta er ótrúlega mikilvæg atvinnugrein og gerir ótrúlega mikið fyrir þjóðarbúið þannig að við erum gríðarlega spennt fyrir framhaldinu og vonum að þessar spár rætist,“ Ragnhildur Ágústsdóttir, stofnandi Lava Show. Í Laugardalshöll mátti finna kynningar frá gamalgrónum Íslandsvinum, eins og Dönum, New York búum og Svíum. En þar voru líka nýliðar, eins og sendinefnd frá Norður-Karólínu, sem segir margt líkt með sínum heimaslóðum og Íslandi. „Að sumu leyti, já. Ísland virðist vera langt á undan okkur hvað sjálfbærni varðar en við lítum til Íslands sem fordæmis,“ segir Heidi Walers, fulltrúi Visit North Carolina. Hið finnska fljótel Meðal þess sem var til sýnis í Laugardalshöll var hið finnska fljótel, eða flothótel. Stofnandi flótelsins segir mikla möguleika hér á landi, til dæmis á Fjallsárlóni, þar sem tvö slík er þegar að finna. „Þetta er rosa spennandi og mikil jákvæðni í kring um þetta. Fólk hefur mjög gaman af þessu verkefni,“ segir Steinþór Arnarson, eigandi og framkvæmdastjóri Fjallsárlóns. „Ísland er nýr markaður fyrir okkur. Við erum að koma inn á nýja markaði svo það er upplagt fyrir okkur að vera hér,“ bætir Tomi Sipola, einn eigenda Aurora Hut, við.
Ferðamennska á Íslandi Fréttir af flugi Reykjavík Icelandair Ráðstefnur á Íslandi Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Sjá meira