Innlent

Mótstaða við breytingar ekki vegna eigin hagsmuna heldur faglegs mats

Snorri Másson skrifar

Inga Lilý Gunnarsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands, segir mótstöðu Lyfjafræðingafélags Íslands við frumvarp um að heimila lausasölu lyfja í almennum verslunum ekki sprottna út frá hagsmunum lyfjafræðinga, heldur faglegum forsendum.

Inga Lilý Gunnarsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands, telur áform um lausasölu lyfja í almennum verslunum ekki æskileg.Vísir/Vilhelm

„Ég skil vel hugsunina að vilja auka aðgengi og ég vil alveg fara í Krónuna og geta kippt með mér Ibufen eða Paratabs eða hvað það er. Hins vegar eru þetta lyf og lyf eru ekki almenn vara. Og það er margt sem þarf að varast með lyf. 

Þannig að við sjáum þetta ekki fyrir okkur sem jákvæða breytingu. Við viljum halda lyfjunum í apótekunum til að geta veitt ráðleggingar til fólks sem þarf á þessu að halda,“ sagði Inga Lilý í Íslandi í dag, þar sem málið var til umfjöllunar.

Meginreglan er sú á Íslandi að hefðbundin ólyfseðilsskyld verkjalyf eru aðeins seld í apótekum og bönnuð í almennum verslunum. Fyrir tveimur árum var lausasalan heimiluð í almennum verslunum á landsbyggðinni þar sem meira en 20 kílómetrar voru í næsta apótek. Nú hefur Berglind Ósk Guðmundsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks lagt fram frumvarp þar sem lausasalan er heimiluð í almennum verslunum án þessa skilyrðis.

Lyfjastofnun lýsir yfir efasemdum og það gera einnig lyfjafræðingar. „Þetta getur verið hættulegt í of stórum skömmtum. Parasetamól er að valda miklum lifrarskemmdum. Það er annað algengasta lyfið sem hringt er útaf í eitrunarmiðstöðinni á Íslandi,“ segir Inga Lilý og bætir við að hætt sé við því að eitrunum fjölgi ef aðgengi eykst, eins og hún segir hafa sýnt sig í Svíþjóð. Þar var lyfið síðan bannað í lausasölu.

Óvíst er hver afdrif frumvarpsins verða en þingmenn úr öðrum flokkum eru meðflutningsmenn Berglindar. „Ég get séð fyrir mér að enn um sinn muni þetta haldast í apótekum en maður veit ekkert hvað gerist í framtíðinni,“ segir Inga Lilý.

Berglind Ósk Guðmundsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokknum lagði fram frumvarpið í haust.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×