„Það var röð fyrir utan allar verslanir í morgun. Full verslun í Lindum strax í morgun, á Akureyri og í Skeifunni,“ segir Arinbjörn í samtali við Vísi.
Söluvefurinn bilaður á langmesta söludegi ársins
Svo virðist sem annáluð kaupgleði Íslendinga sé síst í rénun þrátt fyrir nýlega og umdeilda stýrivaxtahækkun Seðlabankans. Bilun var á vef Elko í gærkvöldi og í dag sem Arinbjörn segir afar óheppilegt enda sé um að ræða langstærsta söludag ársins í dag, á Svörtum föstudegi.
„Það er stórt teymi sem vinnur að viðgerð enda er um að ræða einn stærsta söluvef landsins í smásöluverslun. Við sjáum til. En þetta er bagalegt því vefverslunin er mikilvæg, stærsta rekstrareining Elko fyrir utan Lindir.“

Arinbjörn segir að þeir verði að sjá hvernig fer en bilunin er ekki vegna álags heldur einhverjar villur í kerfinu sem gerðu vart við sig. Og hann telur að þetta hafi leitt til þess að fólk hafi brugðið undir sig betri fætinum og steðjað á staðinn.
Markaðsstjórinn segir allt leggjast á eitt hvað varði að hinn svarti föstudagur sé helsti söludagur ársins. Margir vilji nýta þennan dag til að ganga frá jólagjöfum en kannanir hafi leitt í ljós að meðal-Íslendingurinn gefi tíu gjafir og fleiri. Því muni um minna þegar afslættir eru góðir.
Elko sprengi ekki upp verð til að gefa svo ríflega afslætti
Lengi hefur verið talað um það að verslunarmenn freistist til að hækka verð á vörum sínum áður en að afsláttardögum kemur til að geta svo auglýst ríflega afslætti. Arinbjörn segir það sannarlega ekki eiga við þá í Elko. Undirbúningur fyrir Svartan föstudag hefjist hálfu ári áður, og um sé að ræða samstillt átak verslunarinnar og birgja; að geta boðið sem hagstæðast verðið.
„Þá brugðum við á það ráð að birta verðsögu vörunnar. Sem þýðir gegnsæi gagnvart viðskiptavinum og eykur aðhald á okkur.“
Spurður hvaða vörur það séu vinsælastar segir Arinbjörn það í raun allan skalann, því fólk noti tækifærið og kaupi nú jólagjafir. En nefnir þó að sjónvörp séu ávallt vinsæl þegar góður afsláttur býðst.