Þrír sagðir hafa ráðist á mann við fjölbýlishús Atli Ísleifsson skrifar 25. október 2022 06:09 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði nóg að gera í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Vilhelm Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Eitt útkalla sneri að tilkynningu um slagsmál við fjölbýlishús þar sem þrír eru sagðir hafa ráðist á einn.
Í dagbók lögreglu segir að engar kröfur hafi komið upp að svo stöddu varðandi mögulega kæru og var sömuleiðis ekki talin þörf á sjúkrabíl. Ekki er tekið fram hvenær útkallið barst eða hvar slagsmálin voru, nema að þetta hafi verið á svæði lögreglustöðvar 3 sem nær yfir Kópavog og Breiðholt í Reykjavík. Einnig segir frá því að vegfarandi hafi tilkynnt um hóp ungmenna sem var að stappa á Hopp rafmagnshjóli. Hópurinn sagðist þó ekki kannast við neitt þegar lögregla bar að garði, en vegna aldurs voru afskipti lögreglu tilkynnt bæði til foreldra og barnaverndar. Í dagbók lögreglu segir einnig að tilkynnt hafi verið um þjófnað á fatnaði úr verslun í miðborð Reykjavíkur. Er lýsing til staðar á geranda og sömuleiðis myndskeið úr eftirlitsmyndavélakerfi. Sömuleiðis var tilkynnt um þjófnað úr matvöruverslun. Meintur gerandi var á staðnum þegar lögregla mætti og var málið afgreitt þar. Nokkuð var tilkynnt um umferðaróhöpp og grunsamlegar mannaferðir á höfuðborgarsvæðinu bæði í gærkvöldi og í nótt. Þá segir einnig frá því að ökumaður bíls hafi verið handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sá var ekki með skilríki og reyndi að gefa upp kennitölu annars manns. Hann var látinn laus eftir afgreiðslu málsins.
Lögreglumál Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira