Notuðu hestamennsku sem yfirvarp fyrir kannabisræktun Árni Sæberg skrifar 21. september 2022 21:01 Ólafur Ágúst mætti í dómsal í dag auk annarra sakborninga í saltdreifaramálinu svokallaða. Hann er þó ekki grunaður um aðild að hinu eiginlega saltdreifaramáli. Vísir Fjórir karlmenn eru ákærðir fyrir mjög umfangsmikla kannabisræktun á bóndabæ á Suðurlandi. Samkvæmt vitnisburði lögreglunnar átti húsráðandi, sem ekkert vit hafði á kannabisræktun, samskipti við annan höfuðpaur ræktunarinnar með hestamennskudulmáli.
Aðalmeðferð í saltdreifaramálinu svokallaða hélt áfram í Héraðsdómi Reykjavikur í gær. Málið varðar annars vegar innflutning mikils magns amfetamínbasa, sem þrír menn eru ákærðir fyrir, og hins vegar umfangsmikla kannabisræktun á sveitabænum Hjallanesi við Hellu, sem fjórir eru ákærðir fyrir. Þeir Halldór Margeir og Guðjón Sigurðsson eru ákærðir í báðum liðum en Ólafur Ágúst Hraundal og Geir Elí Bjarnason fyrir kannabisræktunina. Í vitnisburði lögreglumanna sem rannsökuðu málið kom fram að talið væri að þeir Halldór Margeir og Ólafur Ágúst hafi verið eigendur ræktunarinnar en þeir hafa báðir verið umsvifamiklir í fíkniefnaviðskiptum í fjöldamörg ár og hafa hlotið þunga dóma fyrir slíkt. Guðjón hafi aðeins verið eigandi hússnæðisins þar sem ræktunin fór fram og daglegur umsjónarmaður kannabisplantanna. Geir Elí hafi svo verið einhvers konar sérfræðingur að sunnan. Hann hafi komið að Hjallanesi þegar Guðjón vantaði aðstoð með fræðilega hlið kannabisræktunnar. Fjórmenningarnir hafi svo allir komið að því að klippa niður og þurrka kannabisefnin. Fylgdust með á hverjum degi í rúma fjóra mánuði Af vitnisburði lögreglumanna, sem báru vitni fyrir dómi í gær, að dæma var rannsókn málsins gríðarlega umfangsmikil. Eftir að vísbendingar bárust um að ræktunarbúnaður væri geymdur á Hjallanesi hófst rannsókn lögreglu á sveitabænum. Þegar pallbíll í eigu bílasölu, sem Ólafur Ágúst hafði umráð yfir vegna fyrirhugaðra kaupa, sást við rannsóknina fóru spjótin að berast að honum og aukinn kraftur var settur í rannsóknina. Frá umræddum bæ.Vísir/Egill Bílasalan heldur einnig uppi vörnum í málinu og mótmælir upptökukröfu ákæruvaldsins vegna bílsins enda hafi kaupunum verið rift. Þá hófst reglubundið eftirlit með Hjallanesi. Lögreglumenn fóru að bænum á hverjum einasta degi á tímabilinu 10. febrúar til 20. maí. Framanaf beindist grunur lögreglunnar að þeim Guðjóni, Ólafi Ágústi og Geir Elí. Fyrir lá að Guðjón var eigandi Hjallaness og hina tvo sáu lögreglumenn reglulega koma að bænum. Lögreglumaður sem sinnti eftirliti sagðist til að mynda hafa séð Ólaf Ágúst reglulega koma að bænum á fyrrnefndum pallbíl og bera inn úr honum alls kyns varning. Þá hafi hann stundum snúið aftur að bílnum með stóra svarta ruslapoka sem í virtust vera stórar hvítar tunnur. Við rannsókn málsins fundust eins hvítar tunnur fullar þurrkuðu kannabisefni. Tóku upp mynd og hljóð í skemmunni Lögreglan beitti öllum tiltækum ráðum við rannsókn málsins og fékk heimild fyrir skyggingu og mynd- og hljóðeftirliti á Hjallanesi, svo eitthvað megi nefna. Lögreglumenn náðu að koma fyrir myndavélum og hljóðnemum inni í skemmunni þar sem ræktunin fór fram. Á myndskeiðum sjást mennirnir fjórir meðal annars koma saman í ræktuninni og klippa niður plönturnar. Þá fyrst þegar það myndskeið var skoðað kom Halldór Margeir inn í myndina. Halldór Margeir huldi sig þegar honum var fylgt inn í dómsal af fangaverði í fyrradag. Hann notaði sama teppi í dómsal í gærVísir Lögreglumaður sem vann skýrslu upp úr því sem sjá mátti á myndskeiðinu bar fyrir dómi að svo virtist sem Halldór Margeir hafi stýrt ræktuninni að mestu. Þá hófst eftirlit með Halldóri Margeiri og skoðað lögregla meðal annars samskipti hans við Guðjón húsráðanda á Hjallanesi. Í þeim samskiptum sem skoðuð voru töluðu mennirnir tveir mikið um hestamennsku. Svo virðist sem þeir hafi talað undir rós um kannabisræktunina með því að nota hugtök tengd hestamennsku. Til að mynda ræddu þeir nauðsyn þess að „fara að járna“ skömmu áður en þeir sáust klippa niður plönturnar, ef marka má framburð lögreglumannsins. Þá töldu lögreglumenn að þeir hefðu notað slanguryrðið „horaður hestur“ þegar þeir ræddu um saltdreifarann. Áttu saman stóðhest Verjandi Halldórs Margeirs spurði lögreglumanninn þá hvort það væri óeðlilegt að tveir áhugamenn um hestamennsku ræddu saman hluti á borð við það að snyrta hófa. Hann benti á að þeir Guðjón og Halldór Margeir stunduðu báðir hrossaræktun og ættu meira að segja saman stóðhest. „Alls ekki, mjög eðlilegt,“ svaraði lögreglumaðurinn og játti því einnig að sennilega hefðu Guðjón og Halldór Margeir þekkst frá árinu 2016, löngu áður en kannabisræktun á bæ Guðjóns hófst. Fréttin hefur verið leiðrétt. Upphaflega stóð að pallbíll sá sem Ólafur ók að Hjallanesi hafi verið í eigu félags í hans eigu.
Saltdreifaramálið Dómsmál Lögreglumál Fíkniefnabrot Rangárþing ytra Tengdar fréttir Neita að hafa átt dulkóðuð samskipti í saltdreifaramálinu Aðalmeðferð í saltdreifaramálinu svokallaða hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Um er að ræða eitt stærsta mál sinnar tegundar hér á landi og er talið tengjast gríðarstóru peningaþvættismáli, sem er nú til rannsóknar. 19. september 2022 19:22 Ólafur Ágúst játaði og neitaði á víxl í umfangsmiklu fíkniefnamáli Ólafur Ágúst Hraundal, áður Ægisson, játaði og neitaði ákæruliðum á víxl í umfangsmiku fíkniefnamáli þegar hann tók afstöðu til ákæruefnisins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ólafur er ákærður fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot, meðal annars með því að hafa staðið að stórtækri kannabisræktun á sveitabæ í Rangárþingi ytra. 6. september 2022 14:00 Neituðu og játuðu sök á víxl í risavöxnu dópmáli Sakborningar í þremur risavöxnum dópmálum, sem eru ákærðir fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi, neituðu og játuðu sök á víxl þegar málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Fimm eru ákærðir í málinu en tveir sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við málið. 31. ágúst 2022 10:30 Mest lesið „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Sigldu af stað með mótmælandann um borð Innlent „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Innlent „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Innlent Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ Innlent Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Innlent Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Innlent Fleiri fréttir Bein útsending frá Hvalfirði Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Landsréttur sýknar Sindra og Ísidór af hryðjuverkaákæru „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Þingmenn beðnir um að vera á tánum og tímamót í golfsögu Íslendinga nálgast Mótmælendur ekki kærðir eftir truflun á þingfundi Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Bein útsending: Samtal um þjóðaröryggi – Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu Myndaveisla: Norðlendingar fögnuðu á 17. júní „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Myndaveisla: Þjóðhátíðardagur Íslendinga haldinn hátíðlegur Slagsmál brutust út eftir árekstur Rubio óskar Íslendingum til hamingju með daginn Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Kölluð á vettvang vegna rifrildis þar sem annar tók upp hníf Sjá meira
Neita að hafa átt dulkóðuð samskipti í saltdreifaramálinu Aðalmeðferð í saltdreifaramálinu svokallaða hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Um er að ræða eitt stærsta mál sinnar tegundar hér á landi og er talið tengjast gríðarstóru peningaþvættismáli, sem er nú til rannsóknar. 19. september 2022 19:22
Ólafur Ágúst játaði og neitaði á víxl í umfangsmiklu fíkniefnamáli Ólafur Ágúst Hraundal, áður Ægisson, játaði og neitaði ákæruliðum á víxl í umfangsmiku fíkniefnamáli þegar hann tók afstöðu til ákæruefnisins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Ólafur er ákærður fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot, meðal annars með því að hafa staðið að stórtækri kannabisræktun á sveitabæ í Rangárþingi ytra. 6. september 2022 14:00
Neituðu og játuðu sök á víxl í risavöxnu dópmáli Sakborningar í þremur risavöxnum dópmálum, sem eru ákærðir fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot og skipulagða brotastarfsemi, neituðu og játuðu sök á víxl þegar málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Fimm eru ákærðir í málinu en tveir sitja í gæsluvarðhaldi í tengslum við málið. 31. ágúst 2022 10:30